Sjálfboðaliðastarf

Þeir sem hafa þekkingu og reynslu á málefnum barna og hafa áhuga á að vinna með börnum geta gerst sjálfboðaliðar á heyrumst.is.

Sjálfboðaliðar veita börnum og unglingum sem hafa samband á heyrumst.is skrifleg svör og stuðning. Um er að ræða 2-6 klukkustundir á mánuði á tilteknum dögum og tíma á skrifstofu Barnaheilla - Save the Children á Íslandi að Suðurlandsbraut 24.


Markmið heyrumst.is er að:

  • veita börnum og unglingum yngri en 18 ára stuðning og upplýsingar á þeirra forsendum
  • gefa börnum og unglingum tækifæri til að láta skoðanir sínar í ljós
  • safna upplýsingum um hvað hvílir á börnum og unglingum og nota þær til að bæta aðstæður barna í íslensku samfélagi.

Netsvörun er á íslensku, ensku og pólsku.

Með því að starfa á heyrumst.is fá sjálfboðaliðar ýmis tækifæri:

  • til að láta gott af sér leiða við að veita börnum og unglingum stuðning
  • til að kynnast starfi alþjóðlegra félagasamtaka sem vinna að mannréttindum barna um allan heim
  • til að víkka sjóndeildarhringinn með því að kynnast vel málefnum barna og unglinga á Íslandi
  • til að kynnast öðrum sjálfboðaliðum  
  • fá reynslu og þekkingu sem nýtist í námi, einkalífi og starfi

 

Undirbúningsnámskeið og þjálfun fyrir sjálfboðaliða er 3x3 tímar.

 

Nánari upplýsingar veitir Petrína Ásgeirsdóttir s. 553 5905, netfang petrina@barnaheill.is

 

 

Do you wish to volunteer working on an online answering service of Save the Children Iceland heyrumst.is?

Heyrumst.is is an online answering service of Save the Children Iceland (Barnaheill)

It’s aim is to:

  • support and inform children up to age of 18 years on their own conditions,
  • provide an opportunity for children to express their views,
  • collect information on concerns of children and young people and use it to improve their conditions in Iceland.

Online answers is available in Icelandic, Polish and English.

 

Those with knowledge of matters of children and an interest in working with them can volunteer if they are 22 years of age or older.

 

Volunteers provide written answers, information and support for children and young people, who contact the netline. Volunteers work 2-6 hours per month on times agreed upon at the office of Save the Children Iceland at Suðurlandsbraut 24 in Reykjavik.

 

A preparation course is 3x3 hours.

 

For further information please contact Petrína Ásgeirsdóttir – tel: 553 5905 or email petrina@barnaheill.is