Frétt

100.000 barnshafandi konur í bráðri hættu á flóðasvæðunum í Pakistan

30. ágúst 2010 - 11:01:19

IWPakistan25AUG10002_minniAð minnsta kosti hálf milljón barnshafandi kvenna hefur orðið fyrir barðinu á afleiðingum flóðanna. Samkvæmt upplýsingum frá Sameinuðu þjóðunum, eiga ríflega 100.000 þessara kvenna að fæða á næstu mánuðum. Margar þessara kvenna mun þurfa að eiga börn sín í bráðabirgðaskýlum, án aðgangs að hreinu vatni og heilbrigðisþjónustu og, oftar en ekki, umkringdar af menguðu flóðavatni.

„Við vitum að mæður eru að eiga börn sín í lélegum og troðfullum skýlum, í næsta nágrenni við mengað vatn og rústir,“ segir Sonia Khush, framkvæmdastjóri Neyðarhjálpar Barnaheilla – Save the Children. „Við vitum einnig að nýburar eru í langmestri hættu; mesta áhættan í lífi barns í þróunarlöndunum eru í byrjun, fyrstu stundirnar og dagarnir, þó ekki bætist ofan á þau vandkvæði sem hamfarir af þessari stærðargráðu valda. Hrakningar, aukin fátækt, yfirfyllt skýli, sjúkdómar og sýkingar setja líf mæðra og nýbura í Pakistan í enn frekari hættu.“

Fyrir flóðin, var dánartíðni smábarna í Pakistan mjög há; eitt af hverjum tuttugu börnum dó innan við mánuð eftir fæðingu. „Við erum að fást við ástand sem stefnir lífi barna í voða,“ segir Sonia Khush. „Hitasótt, malaría, niðurgangur og aðrir sjúkdómar eru að leggjast á hundruð þúsundir manna. Alla þessa sjúkdóma má lækna en þeir eru banvænir, sérstaklega börnum, ef ekki er tekið á þeim. Heilsugæslustarfsmenn okkar sinna hundruðum manna á hverjum degi, þar með talið barnshafandi konum, konum á sæng og börnum. Við reynum að ná til sem flestra barna og fullorðinna eins fljótt og mögulegt er.

Til þessa hefur Barnaheill – Save the Children náð til 160 þúsund manna í gegnum bráðaheilbrigðisþjónustu og dreifingu á matvælum, tjöldum, grunnbúnaði fyrir skýli, hreinlætisbúnaði og öðrum varningi. Hjálparstarfsmenn samtakanna hafa aðstoðað konur og börn þeirra við mjög erfiðar aðstæður. Abida, sem var ófrísk af sínu fyrsta barni, neyddist til að flýja heimili sitt. Hún átti barnið sitt í skóla þar sem 2000 manns höfðu leitað skjóls en naut aðstoðar starfsmanna á vegum Barnaheilla – Save the Children í fæðingunni auk þess sem þeir gátu útvegað Abidu og drengnum hennar  lyf og nauðsynlegan varning fyrir nýfædd börn.

Samtökin starfa í öllum fjórum héruðunum sem urðu illa úti, í gegnum klasa Sameinuðu þjóðanna og í samstarfi við yfirvöld landsins, og veita fjölskyldum aðstoð sem orðið hafa fyrir barðinu á flóðunum. Barnaheill – Save the Children hafa starfað í Pakistan í ríflega 30 ár.

Hægt er að hringja í söfnunarsíma Barnaheilla –Save the Children á Íslandi, 904 1900 og 904 2900, til að leggja málefninu lið eða leggja inn frjáls framlög á 0336 - 26 – 000058, kt. 521089-1059.