01. júní 2012 - 09:59:00
Barnaheill – Save the Children á Íslandi óska eftir að ráða framkvæmdastjóra.
Framkvæmdastjóri starfar í umboði stjórnar og ber ábyrgð á daglegum rekstri samtakanna. Starfið felur í sér samstarf við stjórnvöld, fyrirtæki og stofnanir hér á landi auk mikilla samskipta við erlenda samstarfsaðila. Leitað er eftir líflegum og kraftmiklum einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á réttindamálum barna og vill stuðla að samfélagi sem hefur barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi.
Helstu verkefni framkvæmdastjóra:
- Viðhald og efling samskipta við aðila innanlands sem utan
- Gerð fjárhags-, rekstrar- og verkefnaáætlana og eftirlit með þeim
- Samningagerð í samráði við stjórn samtakanna
- Yfirumsjón með bókhaldi og gerð fjárhagsuppgjöra
- Starfsmannahald, ráðningar, laun, símenntun o.fl.
Menntun og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun
- Reynsla á sviði rekstrar, stjórnunar og fjáröflunar
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Hæfni til að byggja upp öfluga liðsheild sem nær árangri
- Geta til að fjalla um málefni félagsins af öryggi
- Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð og frumkvæði í athöfnum
- Fullkomið vald á íslensku og ensku, tal- og ritmáli
Umsókn ásamt ferilskrá á íslensku og ensku berist til auglýsingadeilda Morgunblaðsins/Fréttablaðsins fyrir 25. júní nk. eða sendist á box@mbl.is eða box@frett.is merkt 25015.
Upplýsingar veitir Kolbrún Baldursdóttir, formaður stjórnar Barnaheilla – Save the Children á íslandi, netfang: kolbrunbald@simnet.is