Frétt

Tengjum kynslóðir á alþjóðlega netöryggisdaginn

02. febrúar 2012 - 09:48:00

Netöryggismiðstöðvar 30 Evrópuþjóða, sem mynda Insafe-netverkið, og nær 40 önnur lönd munu þennan dag leiða saman ungt fólk og fullorðna til að vekja athygli á og ræða um Netið. Netverkið hefur látið framleiða stutta auglýsingu til að styðja við átakið. Hún verður sýnd í sjónvarpi næstu daga auk þess sem hún verður aðgengileg á Netinu.

Í tilefni netöryggisdagsins stendur SAFT (Samfélag, fjölskylda og tækni), sem Barnaheill – Save the Children á Íslandi eiga aðild að, fyrir málþingi í Bratta, aðalbyggingu Menntavísindasviðs Háskóla Íslands v/Stakkahlíð, frá kl. 13.00-16.00. Málþingið er haldið í samstarfi við ráðuneyti innanríkis-, mennta- og menningarmála og velferðar, Póst- og fjarskiptastofnun, Símann, Microsoft Íslandi  og Háskóla Íslands. Fundarstjórar verða Hrefna Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla, og Sigurbergur I. Jóhannsson, ungmennaráði SAFT.

Dagskrá:

• 13.00 - Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra setur málþingið

• 13.10 - Ari Eldjárn uppistandari: Hvernig er líf án Netsins og hvernig verður Netið í framtíðinni?

• 13.25 - Diljá Helgadóttir, ungmennaráði SAFT: Áhrif internetsins á samskipti fólks

• 13.45 - Ólafía Dögg Ásgeirsdóttir, verkefnisstjóri hjá Reykjavíkurborg: Ungir uppfæra eldri borgara

• 14.05 - Salvör Gissurardóttir, lektor í upplýsingatækni og tölvunotkun í námi og kennslu við Menntavísindasvið HÍ: Félagslegur jöfnuður og Internetið

• 14.25 - Kaff

i• 14.45 - Stefán Jökulsson, lektor í kennslufræði, Menntavísindasviði HÍ: Hvað er af sem áður var? Um kynslóðamun í stafrænum heimi

• 15.05 - Einar Skúlason, kynningarstjóri Fréttablaðsins og Vísis, Markaðssviði: Siðferði, fjölmiðlar og Netið – fjölmiðlafólk miðlar til grunnskólanema

• 15.25 - Stefán Hrafn Hagalín, forstöðumaður samskiptasviðs Advania: Með tilkomu öflugra leitarvéla og samfélagsmiðla er einkalíf þitt og lífshlaup eins og opin bók. Friðhelgi fortíðar er fyrir bí. En skiptir það máli í nútímanum og hver er hættan í framtíðinni?

• 15.45 - Pallborðsumræður

• 16.00 - Veitingar

 

Málþingið verður sent beint út á Netinu en nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu SAFT. Vinsamlega tilkynnið þátttöku með því að senda tölvupóst á saft@saft.is eða á Facebook síðu SAFT, en þingið er öllum opið án endurgjalds á meðan húsrúm leyfir.