tilkynna óviðeigandi efni

Gildi samtakanna

Ábyrgð

Að taka persónulega ábyrgð á að fjármagn sé nýtt á árangursríkan hátt, að ná mælanlegum árangri og að geta skilgreint árangurinn fyrir styrktaraðilum, félögum og því mikilvægasta af öllu; börnunum. 

Metnaður

Starfsmennirnir eru kröfuharðir á sjálfa sig og starfsfélaga sína, setja sér háleit markmið og eru ávallt skuldbundnir því að bæta gæði starfsins í þágu barnanna.

Samstarf

Virðing og metnaður fyrir hvert öðru skiptir miklu máli, starfsfólkið þrífst á margbreytileika og vinnur með öðrum félögum til að auka áhrif starfsins svo það skipti börnin sem mestu máli.

Sköpunargleði

Samtökin eru opin fyrir nýjum hugmyndin, fagna breytingum og taka agaða áhættu til að þróa varanlegar lausnir fyrir, og með, börnum.

Heilindi

Keppt er að því að mæta hæstu siðferðiskröfum með heiðarleika og hegðun; við gerum aldrei málamiðlanir þegar kemur að orðspori okkar og vinnum ávallt með hag barnanna að leiðarljósi.