SAMAN-hópurinn
Barnaheill – Save the Children á Íslandi eiga aðild að SAMAN-hópnum - samanhopurinn.is. Hópurinn er samstarfsvettvangur félagasamtaka og stofnana sem láta sig velferð barna varða. Markmiðið með starfi hópsins er að styðja og styrkja foreldra í uppeldishlutverki þeirra. SAMAN-hópurinn leggur áherslu á samveru foreldra og barna á tímamótum, á hátíðum og í leyfum og sendir skilaboð til foreldra í þá veru. Á árinu 2010 sendi SAMAN-hópurinn spilastokka til allra nemenda í 5. bekk grunnskóla á Íslandi til að minna á mikilvægi samverunnar. Rannsóknir hafa sýnt að samvera foreldra og barna er ein besta forvörnin. Að verja tíma saman skilar árangri og rannsóknir hafa einnig sýnt að börn og unglingar vilja verja meiri tíma með foreldrum sínum. Það sama hefur komið fram í máli foreldra sem tekið hafa þátt í könnunum.
Nánari upplýsingar og fræðslu er að finna á heimasíðu hópsins, samanhopurinn.is.
Náum áttum
Barnaheill – Save the Children á Íslandi taka þátt í starfi Náum áttum hópsins - naumattum.is. Um er að ræða samstarfshóp aðila sem vinna að málefnum barna og stendur hópurinn reglulega fyrir fræðslufundum. Meðal þess sem rætt var á fræðslufundum á árinu 2010 voru börn með athyglisbrest og ofvirkni (ADHD), börn og vímuefni, velferð barna, einelti, brottfall úr framhaldsskóla og ábyrgð og hlutverk foreldra.
Á heimasíðu hópsins, naumattum.is, má finna upplýsingar um fundi og ráðstefnur sem hópurinn stendur fyrir.
Skuggaskýrsla til barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna
Barnaheill – Save the Children á Íslandi unnu skuggaskýrslu um stöðu barna á Íslandi með hliðsjón af barnasáttmála S.þ. í samvinnu við Mannréttindaskrifstofu Íslands, Barnahjálp S.þ. á Íslandi. Meðal helstu niðurstaða skýrslunnar er að þó gerðar hafi verið tvær aðgerðaráætlanir, annars vegar um barnavernd og hins vegar um aðgerðir til að bæta stöðu barna og ungmenna, hefur aðeins lítill hluti þessara áætlana komist til framkvæmdar. Ástæða er til að hvetja stjórnvöld eindregið til að bæta úr því um leið og unnið er áfram að endurskoðun og uppfærslu þessara aðgerðaáætlana. Einnig má nefna að þrátt fyrir að til sé heildarstefna í málefnum innflytjenda, þar sem nokkrir liðir fjalla sérstaklega um börn innflytjenda, hefur fátt eitt komið til framkvæmda. Úr því verður að bæta og sérstaklega ber stjórnvöldum að gera öllum sveitarfélögum skylt að móta sér stefnu í þjónustu við innflytjendur. Það er mat samtakanna að sárlega skorti heildarstefnu í málefnum barna og barnafjölskyldna af hálfu stjórnvalda.