Heyrumst.is

Barna- og unglingalínan Heyrumst.is

heyrumstÍ tilefni af tuttugu ára starfsafmæli á Íslandi í október 2009 opnuðu Barnaheill - Save the Children á Íslandi barna- og unglingavefinn heyrumst.is. Vefurinn er liður í að hvetja börn og unglinga til að nýta sér þann tjáningarrétt sem barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna tryggir þeim. Heyrumst.is er gagnvirk vefsíða þar sem allir undir 18 ára aldri geta látið í ljós skoðanir sínar eða leitað stuðnings og ráðgjafar undir nafnleynd. Vefurinn er á íslensku, ensku og pólsku. Sjálfboðaliðar sjá um ráðgjöfina en þeir fá þjálfun hjá Barnaheillum – Save the Children á Íslandi.

Allar fyrirspurnir á netinu eru nafnlausar, en úr upplýsingunum er unnið þannig að heildstæð mynd fáist af því sem hvílir á börnum og unglingum. Upplýsingarnar eru notaðar til að bæta aðstæður barna í íslensku samfélagi, en málsvarahlutverk er stór þáttur í starfi samtakanna hér á landi. 

Heyrumst.is á facebook.