Rósin er minnisvarði óþekkta barnsins og er til heiðurs börnum um allan heim sem og börnum sem látist hafa af sjúkdómum, illri meðferð eða í stríðsátökum. Rósin er staðsett við gömlu þvottalaugarnar í Laugardalnum og minnir á réttindi barna. Barnaheill – Save the Children á Íslandi eru í samstarfi við samtökin Roses for Children sem komið hafa upp sambærilegum minnisvörðum í 35 löndum víða um heim.
Rósin er hluti af stofnun Hermann Van Veen Foundation sem helgar sig réttindum barna, eins og Barnaheill - Save the Children á Íslandi. Bæði samtökin vinna að því að börn njóti réttlætis, lífs án mismununar vegna kynþáttar, trúar eða þjóðernis og þau búi við kærleika, skilning og öryggi innan fjölskyldu sinnar og í hversdagslegu umhverfi.
Fréttir:
Barnaheill afhjúpa minnisvarðann “Rósina” við hátíðlega athöfn