Samstarf við skóla

S.4. börn í snælansskóla með BarnasáttmálannBarnaheill – Save the Children á Íslandi eiga í góðu samstarf við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu. Það felur meðal annars í sér að nemendur fá leiðsögn kennara sinna við að vinna verkefni í samstarfi við samtökin. Nemendurnir kynna síðan verkefnin á vettvangi samtakanna. Snælandsskóli, Austubæjarskóli og Laugarnesskóli hafa komið að slíkum verkefnum. Verkefni nemenda fjalla meðal annars um menntun barna í stríðshrjáðum löndum, vernd barna gegn ofbeldi og um barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Þá eiga samtökin í góðu samtarfi við framhaldsskóla. Annars vegar er um að ræða fræðslu til nemenda um hin ýmsu málefni sem samtökin vinna að svo sem vernd barna gegn ofbeldi og menntun barna í stríðshrjáðum löndum og hins vegar í fjáröflun nemenda til verkefna samtakanna.