Einn þáttur í starfi Barnaheilla - Save the Children á Íslandi er símaráðgjöf þar sem hægt er að leita upplýsinga um réttindi barna. Allmargir leita til samtakanna og eru flestar fyrirspurnir um lögfræðileg álitaefni. Málin eru af ýmsum toga; forsjármál, umgengnismál, eineltismál, grunur um ofbeldi gegn börnum og réttindamál ýmiss konar.
Sími samtakanna er 553 5900 en einnig má senda fyrirspurnir á barnaheill@barnaheill.is.
Farið er með allar fyrirspurnir sem trúnaðarmál.