Ungmennaráðið

Ungmennaráð samtakanna er félagsskapur ungs fólks á aldrinum 13-25 ára sem vill stuðla að réttlæti í heiminum og vekja athygli á málefnum er varða réttindi og stöðu barna, bæði hér á landi og erlendis. Markmiðið með starfi ungmennaráðsins er annars vegar að stuðla að bættum hag barna og hafa áhrif á viðhorf til barna í samfélaginu og hins vegar að virkja börn og unglinga til þátttöku um að móta það samfélag sem þau eiga aðild að. Fulltrúar ungmennaráðsins sitja ráðstefnur og taka þátt í málþingum samtakanna, skrifa greinar í blöð og taka þátt í opinberri umræðu er varðar málefni barna, eins og þurfa þykir.

Horfin barnæska

Fréttir af ungmennaráðinu:

UNGMENNARÁÐ BARNAHEILLA SEGJA FRÁ FERÐ SINNI TIL NOREGS

„LAUSLÁT SKELLIBJALLA“

OFBELDI GEGN BÖRNUM ER STAÐREYND

UNGMENNARÁÐ FUNDA MEÐ ALLSHERJARNEFND ALÞINGIS

ER AFNÁM HEIMAHJÚKRUNAR FYRIR LANGVEIK BÖRN BROT Á MANNRÉTTINDUM ÞEIRRA?