Fræðsla, forvarnir, rannsóknir

Fræðsla og forvarnir

Verndum börn 

Samtökin eru með fræðsluvef þar sem aðgengilegar eru upplýsingar um vernd barna gegn ofbeldi. Á vefnum er einnig að finna upplýsingar um afleiðingar líkamlegs, andlegs og kynferðislegs ofbeldis gegn börnum í hvaða mynd sem er og hvert hægt er að leita ef grunur vaknar um slíkt. Í tengslum við rannsókn samtakanna á félagslegum úrræðum fyrir börn í Reykjavík, sem eru vitni að heimilisofbeldi, var unnið fræðsluefni um heimilisofbeldi og afleiðingar þess á börn sem er að finna á vefnum.Vefslóðin er: www.verndumborn.is

Þetta er líkaminn minn og veggspjald um slysahættur

Einn liður í fræðslu- og forvarnarverkefni samtakanna um vernd barna gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum er útgáfa bókarinnar ,,Þetta er líkaminn minn”. Bókin er skrifuð til að aðstoða fullorðna og börn á leikskólaaldri við að ræða saman um ofbeldi á opinn og óþvingaðan hátt. Samtökin sjá um dreifingu á bókinni í samstarfi við heilsugæslustöðvar. Á árinu 2007 fóru tæplega 3.000 bækur til barna víða um land. Barnaheill - Save the Children á Íslandi gefa einnig út plakat þar sem vakin er athygli á slysahættum í umhverfi barna. Heilsugæslustöðvar sjá um dreifingu á plakatinu.

16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi

Barnaheill – Save the Children á Íslandi taka árlega þátt í 16 daga átaki félagasamtaka og stofnana gegn kynbundnu ofbeldi í nóvember og desember. Markmið 16 daga átaksins hefur frá árinu 1991 verið að draga kynbundið ofbeldi fram í dagsljósið sem mannréttindabrot. Hópar og samtök um allan heim nýta átakið til að krefjast aðstoðar og stuðnings til handa fórnarlömbum ofbeldis, til að styrkja forvarnastarf og þrýsta á um breytingar á löggjöf til að bæta réttarstöðu þolenda. Þá hefur átakið verið nýtt til að stuðla að því alþjóðlegum mannréttindareglum sé beitt til að vinna gegn kynbundu ofbeldi sem mannréttindabroti, heilbrigðisvandamáli og ógn við mannfrelsi og frið um allan heim. 

 

Rannsóknir

Félagsleg úrræði fyrir börn sem eru vitni að heimilisofbeldi

Í febrúar 2010 hófu Barnaheill - Save the Children á Íslandi þátttöku í rannsókn á félagslegum úrræðum og stuðningi við börn í Reykjavík sem eru vitni að ofbeldi gegn móður eða milli foreldra. Rannsóknin var styrkt af Daphne-áætlun Evrópusambandsins og unnin í samvinnu við Barnaheill – Save the Children á Spáni og Ítalíu. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að brýn þörf er á endurskoðun á málefnum barna, sem eru vitni að ofbeldi á heimilum sínum. Langtímarannsóknir gefa til kynna að þessum börnum er hættara við að þróa með sér langvarandi sálræn og félagsleg vandamál, s.s. þunglyndi, kvíða, sektarkennd, misnotkun áfengis og vímuefna. Samkvæmt tölum, sem bárust frá Íslandi í rannsóknina, verða a.m.k. 2000 börn á ári hverju vitni að heimilisofbeldi (2,5% íslenskra barna). Ekki er óvarlegt að álykta að börnin séu enn fleiri því heimilisofbeldi er oftar en ekki eitt besta geymda leyndarmál fjölskyldu. Rannsóknin má lesa í heild sinni hér.

Netið og kynferðislegt ofbeldi

Litil þekking er fyrir hendi um þátt netsins í kynferðislegu ofbeldi gegn börnum og fáar rannsóknir verið gerðar. Save the Children International hafa bent á mikilvægi þess að efla rannsóknir á þessu sviði og auka þekkingu fólks sem vinnur með börn. Enn fremur er mikilvægt að efla samstarf þeirra aðila sem vinna með börn. Árið 2007, létu Barnaheill - Save the Children á Íslandi gera könnun um menntun fagstétta hvað varðar vernd barna gegn kynferðislegu ofbeldi. Könnunina og niðurstöður hennar er að finna hér.