Netið og vernd barna gegn kynferðislegu ofbeldi

Kynferðislegt ofbeldi hefur langvarandi og skelfileg áhrif á börn og allt lífshlaup þeirra. Á Netinu hefur aukist mjög efni þar sem börn eru sýnd á kynferðislegan hátt og eða þar sem þau eru beitt kynferðisofbeldi. Framleiðsla, varsla, dreifing og skoðun á slíku efni er ólögleg. Mjög mikilvægt er að stemma stigu við slíku efni, uppræta það, finna þolendur og koma þeim til hjálpar. Alþjóðlegt samstarf er ein forsenda þess.

 

Ábendingahnappur - Safer Internet

Barnaheill – Save the Children á Íslandi hafa frá árinu 2001 tekið þátt í alþjóðlegu verkefni um Vernd barna gegn kynferðislegu ofbeldi á Netinu. Verkefnið hefur verið styrkt af Safer Internet samstarfsáætlun Evrópusambandsins.  Markmið verkefnisins er að vekja athygli almennings, lögreglu, löggjafans, netþjónustuaðila, barnaverndaryfirvalda og fleiri aðila á þætti Netsins í kynferðislegu ofbeldi gegn börnum og þrýsta á íslensk stjórnvöld um að axla ábyrgð í þessum málaflokki hérlendis og á alþjóðavettvangi. Kjarni verkefnisins er ábendingalína. Á vef samtakanna er hnappur þar sem hægt er að senda inn nafnlausar ábendingar um slíkt efni á Netinu. Fram til ársins 2009, sáu starfsmenn Barnaheilla - Save the Children á Íslandi um greiningu þeirra ábendinga sem bárust, röktu slóðir þeirra og áframsendu til lögregluyfirvalda.  Að ósk samtakanna, tók embætti ríkislögreglustjóra yfir þann hluta starfsins, enda eru margar ábendingarnar vísbendingar um glæpi gagnvart börnum. Barnaheill - Save the Children á Íslandi funda reglulega með fulltrúum embættisins vegna verkefnisins. 

HNAPPUR

Frá árinu 2001, hafa Barnaheillum - Save the Children á Íslandi borist ríflega 4000 ábendingar í gegnum ábendingahnapp samtakanna. Þar af eru 34% ábendinganna um efni þar sem börn eru beitt kynferðisofbeldi og sýnd á kynferðislegan hátt. Auk þess berast Barnaheillum – Save the Children á Íslandi ábendingar símleiðis eða með tölvupósti, m.a. ábendingar um íslenskar vefsíður með efni, þar sem börn eru sýnd á kynferðislegan hátt eða eru með kynferðislegu tali um börn og unglinga. Jafnframt berast samtökunum ábendingar um óviðeigandi fréttafyrirsagnir og umfjallanir um börn og unglinga. Í þeim tilfellum var verið að brjóta á rétti barna með því hvernig fjallað var um málið, með myndbirtingum og orðanotkun. Verkefnið hefur hlotið hefur stuðning frá Pokasjóði og Landsbankanum

EU_flag_cofunded  inhope   LB_Merki

 

Barnaheill – Save the Children á Íslandi eru í alþjóðasamtökunum INHOPE, sem eru regnhlífasamtök ábendingalína. Í INHOPE samtökunum eru um 40 ábendingalínur, flestar í Evrópu en einnig í Ameríku og Asíu. Starf INHOPE samtakanna felst í að efla þekkingu og deila reynslu um málefnið og veita aðildarfélögum stuðning í baráttunni. Sérhver ábendingalína er rekin í samstarfi við lögreglu og netþjónustuaðila í hverju landi. Hver ábendingalína skráir allar tölulegar upplýsingar í gagnagrunn INHOPE. Þannig er hægt að fylgjast með fjölda ábendinga og hvernig miðar í baráttunni gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum á netinu.

Barnaheill – Save the Children á Íslandi hafa síðastliðin ár beitt sér fyrir því að komið verði á síun á landsvísu á ólöglegu efni á Netinu þar sem börn eru sýnd á kynferðislegan hátt, þ.e. að lokað verði á aðgang að slíku efni hérlendis. Samtökin hafa í því sambandi fundað með netþjónustuaðilum, Póst- og fjarskiptastofnun, embætti ríkislögreglustjóra og fulltrúum frá dómsmálaráðuneytinu.

 

SAFT - Samfélag, fjölskylda, tækni

SAFT_logo_2

Á árinu 2010 gekk í gildi nýr samningur við Evrópusambandið, sem jafnframt tekur til samstarfs Barnaheilla - Save the Children á Íslandi, Heimilis og skóla og Lýðheilsustöðvar undir merkjum Safer Internet Center.  Með honum eru Barnaheill - Save the Children á Íslandi orðin aðili að SAFT-verkefninu, en SAFT stendur fyrir Samfélag, fjölskylda og tækni og er vakningarátak um örugga tækninotkun barna og unglinga á Íslandi. Samkvæmt foreldrakönnun SAFT telja 66% foreldra að þeir þurfi frekari upplýsingar um öryggi á netinu og 74% telja mikilvægt að geta á einum stað leitað ráðgjafar um tæknileg, uppeldisleg og lögfræðilega málefni tengd netnotkun. Í samvinnu við Póst- og fjarskiptastofnun, rekur SAFT vefinn netsvar.is þar sem almenningi gefst kostur á að senda inn fyrirspurnir um hvaðeina sem tengist öruggri netnotkun og fá svör frá sérfræðingum. Á vefnum eru ýmsar upplýsingar um netið og örugga netnotkun og markmiðið er einnig að stuðla að jákvæðri og ánægjulegri netnotkun.

 

Að finna og hjálpa fórnarlömbum

Barnaheill – Save the Children á Íslandi starfa náið með Evrópusamtökum Barnaheilla - Save the Children í ýmsum málaflokkum, m.a. að því að finna börn, sem orðið hafa fyrir kynferðislegu ofbeldi, og myndefni af þeim sem dreift hefur verið á Netinu. Í gagnagrunni Interpol, sem verið hefur í notkun frá árinu 2001, er að finna eina milljón mynda sem sýna kynferðislegt ofbeldi gegn meira en 20.000 börnum en samkvæmt upplýsingum frá Interpol hafa aðeins um 800 þessara barna fundist og fengið nauðsynlegan stuðning. 

Mjög mikilvægt er að börn sem orðið hafa fyrir kynferðislegu ofbeldi fái hjálp. Þetta á ekki síður við ef myndum af þeim hefur verið dreift. Barnaheill – Save the Children á Íslandi starfa náið með Evrópusamtökum Barnaheilla - Save the Children að því að bæta aðstæður barna sem hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi á netinu. Fulltrúar samtakanna beittu sér ötullega fyrir því að í nýjum samningi Evrópuráðsins um vernd barna gegn kynferðislegri misbeitingu og kynferðislegu ofbeldi, yrði ákvæði um að hvert ríki gerði nauðsynlegar ráðstafanir til að finna börnin og sjá til þess að þau fengju viðeigandi stuðning, og að tryggðar yrðu samræmdar aðgerðir á alþjóðlegum vettvangi.

 

Tæling á neti

Með tælingu á netinu er átt við það þegar fullorðinn einstaklingur setur sig í samband við barn á netinu, í þeim tilgangi að byggja upp trúnað, traust og vináttu við barnið. Það er til dæmis gert með því að hrósa barninu og sýna því umhyggju. Viðkomandi reynir enn fremur að skapa vantraust hjá barninu gagnvart fjölskyldu þess. Sá fullorðni segist yfirleitt vera annar en hann er og oft að hann sé barn eða unglingur. Hann fer svo að misbjóða börnunum með klámfengnu og kynferðislegu tali og athöfnum og gera kröfur um kynferðislegar athafnir hjá barninu til dæmis í gegnum vefmyndavél eða með að hitta barnið. Slíkt getur haft alvarlegar afleiðingar í för með sér. Það er mikilvægt að átta sig á því að myndir, sem eru teknar í gegnum vefmyndavélar, og fara í dreifingu á veraldarvefnum, er nánast ókleift að uppræta.

Á heimasíðu SAFT er að finna öryggisboðorðin svokölluðu en þau eru ætluð börnum og foreldrum.