Every One - Réttur allra barna til lífs

Face_with_LogoEVERY ONE er alþjóðlegt átak Barnaheilla – Save the Children til að bjarga milljónum barnslífa. Fyrir rúmri öld, var komið í veg fyrir dauðsföll barna, af völdum auðlæknanlegra sjúkdóma á borð við lungnabólgu og niðurgang, í ríkari löndum heims. Með sameiginlegu átaki, má gera slíkt hið sama í fátækari löndum heimsins. 24 þúsund börn undir fimm ára aldri munu deyja í dag. Hægt hefði verið að koma í veg fyrir flest þeirra dauðsfalla. En því miður er raunveruleikinn sá að öll börn hafa ekki jöfn tækifæri til lífs. Börn frá fátækustu og fjarlægustu stöðum heims eru líklegust til að deyja.

Lungnabólga, mislingar, niðurgangur, malaría, HIV-smit, eyðni og vandamál á meðgöngu og í fæðingu valda ríflega 90% þeirra dauðsfalla sem verða á meðal barna undir fimm ára aldri. Börn sem eru vannærð eru mun líklegri til að deyja úr þessum sjúkdómum þar sem mótstaða þeirra er lítil. Aðrar ástæður leika hér einnig stórt hlutverk, s.s. skortur á heilbrigðisþjónustu eða erfiðleikar mæðra og barna til að nálgast heilbrigðisþjónustu, skortur á hreinu vatni og hreinlætisaðstöðu, skortur á næringarríku fæði, mæðravernd, uppbyggingu og eflingu meðal kvenna og lítill aðgangur að getnaðarvörnum. Allt þetta gerir það að verkum að sum börn eru líklegri til að verða lífshættulegum sjúkdómum að bráð og vegna bágra aðstæðna eru líkurnar á því að þau nái sér af sjúkdómunum einnig minni.

Við getum komið í veg fyrir að börn deyi

Það eru til einfaldar og ódýrar lausnir sem hafa verið reyndar sem koma í veg fyrir að börn deyi. En þeim er ekki til að dreifa í þeim mæli sem þarf til að árangur náist. Og það sem mestu máli skiptir er að þessi dauðsföll eru ekki tilfallandi og utan þess sem ráðið verður við. Þau eru þvert á móti afleiðing stefnu og pólitískra ákvarðana sem yfirvöld hafa tekið. Þá hafa menning, efnahagur, umhverfi, stjórnmál og félagslegir þættir, sem  stjórnvöld, alþjóðlegar stofnanir, einkageirinn og þriðja geirinn geta mótað eða dregið úr, áhrif. Það verður að takast á við þessa undirliggjandi þætti; fátækt, mismunun, átök og brot á mannréttindum, svo tryggja megi jafnan rétt barna að hágæða heilbrigðisþjónustu.Það þarf skýran vilja frá stjórnmálamönnum, almenningi, hjálparstofnunum, fyrirtækjum, ÖLLUM, svo þetta megi verða að veruleika.

Hvað þarf að breytast?

Vestrænar ríkisstjórnir verða að tvöfalda framlög sín til grunn heilsugæslu og í baráttunni við vannæringu í þróunarlöndunum. En þróunarlöndin verða einnig að leggja sitt af mörkum, með því að móta stefnu í því hvernig takast eigi á við barnadauða. Það verður að beina kröftunum að því að bæta heilsu og næringu mæðra og hjálpa hverju barni að lifa af.

EVERY ONE átakið

Þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna

 

Tengdar fréttir:

MENNTUN Í ÞÁGU FRIÐAR - NÝ SKÝRSLA ALÞJÓÐASAMTAKA BARNAHEILLA

LUNGNABÓLGA DREGUR 4300 BÖRN TIL DAUÐA Á HVERJUM DEGI