Menntun

Menntun er einn mikilvægasti hluti aðstoðar sem Barnaheill – Save the Children veita. Þetta á ekki síst við þegar kemur að neyðaraðstoð eða hjálparstarfi í stríðshrjáðum löndum. Um milljón börn í stríðshrjáðum löndum ganga ekki í skóla. Nú eru 72 milljónir barna í heiminum án menntunar, þar af koma 39 milljónir þeirra frá stríðshrjáðum svæðum. Alþjóðlegt átak Barnaheilla - Save the Children í menntunarmálum, Bætum framtíð barna (e. Rewrite the Future), hófst árið 2006 og stóð til ársins 2010. Frá því að farið var af stað með átakið, hefur alhliða menntunaraðstoð á stríðshrjáðum svæðum aukist um 50 prósent og mannúðaraðstoð tvöfaldast.
 

Markmið átaksins var þríþætt: 

  1. Að veita þremur milljónum barna, sem ekki hafa verið í skóla vegna stríðsátaka, menntun og að bæta menntun a.m.k. fimm milljóna barna til viðbótar í 20 stríðshrjáðum löndum fram til ársins 2010.
  2. Að vekja athygli alþjóðasamfélagsins á aðstæðum barna í stríðshrjáðum löndum og nauðsyn þess að leggja meira fjármagn í menntun þeirra. Öðruvísi yrði þúsaldarmarkmiði Sameinuðu þjóðanna um grunnmenntun fyrir öll börn ekki náð fyrir árið 2015.
  3. Að grunnmenntun barna verði hluti af neyðaraðstoð. Ekki síst vegna þess að í fjölmörgum löndum, þar sem eru stríðsátök, er miklu fé varið til neyðaraðstoðar svo árum skiptir og því er mikilvægt að neyðaraðstoðin feli í sér skólagöngu fyrir börn.

Árangur

Alls náðu samtökin að bæta gæði menntunar hjá meira en 10 milljónum barna í 24 stríðshrjáðum löndum og veita 1,7 milljónum barna aðgang að skóla. Þetta gerðu samtökin með því að byggja skóla og kennarabústaði með nauðsynlegri aðstöðu, þjálfa kennara, dreifa námsgögnum og virkja stjórnvöld, börn, foreldra og nærsamfélög þeirra. Alþjóðasamtökin munu áfram vinna að því að gera börnum í stríðshrjáðum löndum kleift að komast í skóla og bæta gæði menntunar þeirra því þrátt fyrir að grunnmenntun sé réttur barna um allan heim, hefði fjöldi barna frá stríðshrjáðum löndum aldrei stigið fæti inn í skólastofu án aðkomu samtakanna og samstarfsaðila þeirra.

Barnaheill – Save the Children á Íslandi studdu verkefni í Afganistan, Kambódíu og Norður-Úganda í gegnum Bætum framtíð barna með samtals 69 milljónum króna og munu áfram styðja menntunarstarf í Norður-Úganda til ársins 2013 a.m.k.

Barnaheill – Save the Children náðu miklum árangri í að vekja alþjóðasamfélagið, þ.e. ríkisstjórnir fjölmargra landa og alþjóðlegar stofnanir, til vitundar um aðstæður barna í stríðhrjáðum löndum og mikilvægi þess að leggja meira fjármagn í menntun þeirra. Þegar átakið  hófst árið 2006 voru 42 milljónir barna í stríðshrjáðum löndum utan skóla en í lok ársins 2010 hafði þeim fækkað um 7,5 milljónir og voru 34,5 milljónir. Alþjóðasamtökin náðu einnig árangri í því að grunnmenntun barna yrði hluti af neyðaraðstoð, og eru þau nú í teymi (e. cluster) með Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna um grunnmenntun barna á svæðum, þar sem neyðaraðstoð er veitt. Þetta er í fyrsta skipti sem alþjóðleg frjáls félagasamtök eru í svo formlegu samstarfi við stofnun á vegum S.þ.

Þess má geta að Barnaheill – Save the Children fengu verðlaun í lok ársins 2010 frá World Innovation Summit for Education (WISE-verðlaunin) fyrir Bætum framtíð barna. Alls voru 400 tilnefningar til verðlaunanna frá 89 löndum og er það mikill heiður fyrir alþjóðasamtökin að hljóta verðlaunin fyrir mikilvægt starf í þágu barna í stríðshrjáðum löndum, barna sem er svo erfitt að ná til og svo auðvelt að gleyma.

Tengdar fréttir:

BARNAHEILL – SAVE THE CHILDREN FÁ VERÐLAUN FYRIR NÝSKÖPUN Í MENNTUNARMÁLUM

HORFIN BARNÆSKA - BARNAHEILL EFNA TIL SÖFNUNAR Á HEILLAVINUM

BEN STILLER OG BULGARI TAKA ÞÁTT Í AÐ BÆTA FRAMTÍÐ BARNA

ÍSLENSKIR RITHÖFUNDAR SENDA BAN-KI MOON BRÉF

BÆTUM FRAMTÍÐ BARNA

BARNAHEILL FÁ 10 MILLJÓN KRÓNA STYRK FRÁ UTANRÍKISRÁÐUNEYTINU

BÆTUM FRAMTÍÐ BARNA Í KAMBÓDÍU

MENNTUN Í ÞÁGU FRIÐAR - NÝ SKÝRSLA ALÞJÓÐASAMTAKA BARNAHEILLA

BÆTUM FRAMTÍÐ BARNA Í STRÍÐSHRJÁÐUM LÖNDUM –MENNTUN OG FRIÐUR

STUÐNINGUR BARNAHEILLA VIÐ MENNTUN BARNA Í KAMBÓDÍU