Rekstur íbúða fyrir langveik börn

Barnaheill - Save the Children á Íslandi eiga tvær íbúðir í Reykjavík, sem ætlaðar eru fjölskyldum veikra barna af landsbyggðinni en Barnaspítali Hringsins hefur umsjón með notkun þeirra. Íbúðirnar eru á Rauðarárstíg og Skúlagötu.

Á árinu 2007 stóðu samtökin og Barnaspítali Hringsins að endurbótum á íbúðunum með stuðningi frá ýmsum styrktaraðilum. Önnur íbúðin var sérstaklega endurbætt og meðal annars skipt út húsgögnum og öðrum búnaði. Einnig var hugað að öryggisatriðum íbúðanna og slökkvitækjum, reykskynjurum og eldvarnarteppum komið fyrir á aðgengilegum stöðum.