Alþjóðasamtök Barnaheilla eru meðal þeirra samtaka sem veita börnum og fjölskyldum þeirra aðstoð og stuðning í kjölfar jarðskjálftanna í Chile. Þau minna á að hundruð þúsunda barna eiga um sárt að binda eftir jarðskjálftana og leggja áherslu á að börnin fái nauðsynlega vernd og nauðsynlegan stuðning.
Barnaheill, Save the Children fengu nýverið fimm milljóna
króna fjárstyrk frá utanríkisráðuneytinu til neyðaraðstoðar á Haítí. Barnaheill, Save the Children, hafa starfað á Haítí frá
árinu 1978. Frá því jarðskjálftinn varð hafa þau aðstoðað um 200 þúsund manns
með matargjöfum, vatni og öðrum nauðsynjum. Samtökin hafa komið upp nokkrum
sjúkrahúsum og hafa þjálfað fjölda heilbrigðisstarfsmanna.
Fjöldi barna eru án fullnægjandi umönunnunar og eru aðskilin
frá foreldrum sem hugsanlega hafa látist eða eru slasaðir og því aukin hættu á
að börnin verða fórnarlömb mansals eða verði misnotuð kynferðislega. Talið er
að a.m.k. ein milljón barna séu nú án umönnunar og séu munaðarlaus eða hafi
misst annað foreldri. Þessi fjöldi er helmingi hærri en var fyrir
jarðskjálftann.
Barnaheill vinna að því í samvinnu við Sameinuðu Þjóðirnar
og fleiri samtök að sameina börn og ættingja þeirra.
Barnaheill, Save the Children, á Íslandi stóðu fyrir stuttri
samverustund hjá minnismerkinu Rósinni við Þvottalaugarnar í Laugardal
þriðjudaginn 2. febrúar og var stundin tileinkuð þeim börnum sem hafa látist
eða eiga um sárt að binda vegna jarðskjálftanna á Haítí. Rósin er alþjóðlegt
minnismerki óþekkta barnsins um von og trú og er ætlað að vera sameiningartákn
fyrir börn á Íslandi og um allan heim. Meira en 100 börn tóku þátt í
samverustundinni, nemendur í þriðja bekk Laugarnesskóla og börn frá Leikskólanum
Njálsborg og lögðu þau m.a. rósir að minnismerkinu.
Rósa Diljá Gísladóttir, nemandi í Laugarnesskóla las reynslusögu Andrise, 9 ára gamallrar stúlku á Haítí og las hún m.a.: ”Ég var að
baða mig daginn sem jarðskjálftinn varð, þegar húsið byrjaði að hristast og hristast. Litla frænka mín stóð við hliðina á mér og við urðum mjög hræddar og
hlupum inn.Þegar við komum inn, þá hrundi einn veggurinn á húsinu á gólfið.
Húsið við hliðina á okkur hrundi og tvö lítil börn sem voru þar inni dóu. Ég hélt að við værum öll að deyja. Ég hélt að það væri komin heimsendir".
Barnaheill, Save
the Children, á Íslandi standa fyrir stuttri samverustund hjá minnismerkinu Rósinni
við Þvottalaugarnar í Laugardal þriðjudaginn 2. febrúar kl. 12.00. Stundin er
tileinkuð þeim börnum sem hafa látist eða eiga um sárt að binda vegna
jarðskjálftanna á Haítí.
Milljónir barna
hafa orðið fórnarlömb jarðskjálftans á Haítí með einum eða öðrum hætti. Börn
hafa misst lífið, hafa særst eða misst foreldra eða systkini í jarðskjálftanum.
Hugurinn er hjá
þessum börnum, lagðar verða rósir við minnismerkið til að minnast barnanna og
allra þeirra sem eiga um sárt að binda vegna hamfaranna.
Barnaheill, Save
the Children hafa starfað á Haítí í 30 ár og hafa unnið að hjálparstarfi þar
frá fyrsta degi jarðskjálftans.
Rósin
er alþjóðlegt minnismerki óþekkta barnsins um von og trú og er ætlað að vera
sameiningartákn fyrir börn á Íslandi og um allan heim.
Í
samverustundinni verður kór Laugarnesskóla með tónlistaratriði, forsvarsmenn
Barnaheilla flytja stutt ávörp og barn segir reynslusögu barns á Haítí.
Samverustundin er
öllum opin og hvetjum við sem flesta að mæta til að sýna samstöðu með öllum
þeim sem eiga um sárt að binda á Haítí.
Jarðskjálftarnir á Haítí hafa skapað aðstæður þar sem börn eru berskjölduð fyrir hættum. Fjöldi barna eru án fullnægjandi umönunnunar og eru aðskilin frá foreldrum sem hugsanlega hafa látist eða eru slasaðir.Börnin búa við mikla tilfinningalega streitu og hætta er á að þau líði næringarskort, verði fórnarlömb mansals eða verði misnotuð kynferðislega. Barnaheill, Save the Children, á Haítí vinna að því samkvæmt beiðni Sameinuðu þjóðanna að sameina börn fjölskyldum sínum. Einnig vinna Barnaheill, Save the Children að því, í samvinnu við önnur hjálparsamtök og við ríkissstjórn Haítí, að meta stöðu barna sem eru á stofnunum og þjónustumiðstöðvum og skrá þau svo hægt verði að finna foreldra þeirra og sameina fjölskyldur á ný.