Alistair Macintyre (f. 1958 í Bretlandi) er búsettur í Reykjavík og hlaut menntun sína í Bretlandi og Finnlandi. Hann vinnur einkummeð stór pappírsmyndverk sem hafa sterka skírskotun til framrásar tímans. Alistair hefur tekið þátt í mörgum samsýningum ytra og haldið einkasýningar á Bretlandseyjum, meginlandi Evrópu og hérlendis þ.m.t. í Gallery Turpentine,Listasafni Reykjavíkur, Kjarvalsstöðum og Listasafni Kópavogs, Gerðarsafni.
|
|
Brian Pilkington (f. 1950) er frá Liverpool á Englandi en hefur búið á Íslandi frá 1977. Hann er löngu þjóðkunnur fyrir teikningar sínar og snjallar myndskreytingar og hefur skrifað og myndskreytt fjölmargar barnabækur, sem gefnar hafa verið út hér heima og erlendis. Bækur Brians um íslenska þjóðtrú og tröll hafa vakið verðskuldaða athygli innan lands og utan á síðari árum. Hann hefur hlotið margar viðurkenningar fyrir verk sín.
|
|
Brynhildur Þorgeirsdóttir útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1978 og sótti sér framhaldsmenntun til Hollands og Bandaríkjanna. Hún vakti fljótt athygli fyrir skúlptúra á sýningu í Nýlistasafninu 1983. Kraftmikil vinnubrögð og óvenjuleg samsetning steinsteypu og glers, dularfullar og lífrænar verur og sterk óhlutbundin form. Verk Brynhildar eru auðþekkjanleg fyrir persónulegan stíl, sem einkennist öðru fremur af sterkri efniskennd og tilvísunum í náttúruna.
|
|
Eggert Pétursson (f. 1956) hefur vakið athygli fyrir málverk sín af íslenskum plöntum. Hann nam við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og síðan við Jan van Eyck Academie í Maastricht í Hollandi. Hann myndskreytti bókina Íslensk flóra með litmyndum, sem kom fyrst út 1983. Eggert hefur haldið margar einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga hér heima og erlendis. Hann hlaut önnur verðlaun Carnegie Art Award 2006. Yfirlitssýning á verkum Eggerts var á Kjarvalsstöðum haustið 2007.
|
|
Finnbogi Pétursson (f. 1959) er fyrst og fremst kunnur af einstæðum hljóðverkum sínum, þar sem hann vinnur með hljóðbylgjur og áhrif þeirra á líkamann. Hann hefur starfað að myndlist um 20 ára skeið og haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum hér heima og víða í Evrópu. Finnbogi var fulltrúi Íslands á Feneyja-tvíæringnum árið 2001. Verk hans er að finna í mörgum söfnum og opinberum byggingum, s.s. hjá Orkuveitu Reykjavíkur og við Vatnsfellsstöð.
|
|
Georg Guðni Hauksson er fæddur í Reykjavík 1961. Hann lærði myndlist við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og Jan Van Eyck Akademie í Maastricht í Hollandi.
Hann hélt sína fyrstu einkasýningu fyrir 1985 og hefur starfað að myndlist síðan og haldið og tekið þátt í fjölda sýninga. Verk Georgs Guðna eru á öllum helstu opinberu söfnum á Íslandi og víða á Norðurlöndum, einnig á einkasöfnum í Ameríku og Evrópu.
|
|
Guðrún Einarsdóttir (f. 1957) hefur starfað að myndlist í nær 20 ár. Tilraunir og meðferð olíulita eru stór þáttur í myndgerð hennar þar sem gróðurlendi, vatn og jarðmyndun eru inntak verkanna. Guðrún hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum hér heima og víðar. Verk hennar eru í söfnum, opinberum byggingum og einkasöfnum hér á Íslandi, Evrópu, Ameríku og Asíu.
|
|
Jónas Bragi Jónasson (f. 1964) stundaði nám í skúlptúr við MHÍ og framhaldsnám í glerlist í Bretlandi og Skotlandi. Verk hans eru í eigu fjölmargra, jafnt í einkaeigu sem hjá stofnunum, listasöfnum og opinberum byggingum. Að auki hefur Jónas Bragi skapað ýmsa verðlauna- og viðhafnargripi. Hann hefur tekið þátt í fjölda samsýninga hér heima og erlendis ásamt því að halda nokkrar einkasýningar hérlendis.
|
|
Steinunn Þórarinsdóttir (f. 1955) er einn af kunnustu myndhöggvurum þjóðarinnar. Hún hlaut menntun sína á Englandi og Ítalíu og á að baki 28 ára feril. Skúlptúrar hennar eru unnir í ýmis efni, en maðurinn og umhverfi hans er meginviðfangsefnið í flestum þeirra. Verk Steinunnar, sem eru bæði inni- og útilistaverk, eru í eigu margra einkasafna, listasafna og stofnana hérlendis sem erlendis. Hún hefur haldið sýningar víða, m.a. í Evrópu, Bandaríkjunum, Ástralíu, Kanada og Japan. Í Bandaríkjunum er nú farandsýning á verkum Steinunnar sem nefnist „Sjóndeildarhringir“ eða „Horizons“ en sýningin hófst í Katonah Museum of Art í New York í júní 2007.
|
|
Vignir Jóhannsson (f. 1952) stundaði nám við MHÍ og við Rhode Island School of Design í Bandaríkjunum, og bjó þar í landi um alllangt skeið. Hann á að baki langan og fjölbreytilegan listferil, sem spannar vítt svið; málverk, innsetningarskúlptúra, glerverk ásamt leikmyndum fyrir leikhús og kvikmyndir. Vignir hefur haldið fjölda einkasýninga, hér heima og í Bandaríkjunum, auk þess tekið þátt í fjölmörgum samsýningum víða um heim. Verk eftir hann eru í eigu íslenskra listasafna og erlendra.
|
|
Þórdís Alda Sigurðardóttir (f. 1950) stundaði myndlistarnám við Myndlistaskóla Reykjavíkur, Myndlista-og handíðaskóla Íslands og Akademie der Bildenden Künste í München. Hún hefur haldið 12 einkasýningar og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum hér á landi og erlendis. Þórdís vinnur iðulega með ,,hráefni“ sem eiga sér fortíð í öðru samhengi, notar t.d. alls kyns nytjahluti, nýja eða gamla, úr taui jafnt sem járni o.fl. Þannig vinnur hún með andstæður í hugmyndum og efni. Undanfarin ár hefur Þórdís sýnt með hópi norrænna listamanna sem kalla sig Provincialistana og hafa þeir, auk sýninga, staðið fyrir málþingum og bókaútgáfu. Hún er einn af stofnendum listhússins START ART á Laugavegi 12b og sýnir þar reglulega.
|
|
|