| III. hluti |
|
|
|
46. gr. Samningur þessi skal liggja frammi til undirritunar af hálfu allra ríkja. 47. gr. Samningur þessi er háður fullgildingu. Fullgildingarskjölum skal koma í vörslu hjá aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. 48. gr. Öllum ríkjum skal heimilt að gerast aðilar að samningi þessum. Aðildarskjölum skal koma í vörslu hjá aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. 49. gr. 1. Samningur þessi gengur í gildi á þrítugasta degi eftir að tuttugasta fullgildingar- eða aðildarskjalinu hefur verið komið til vörslu hjá aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. 2. Gagnvart sérhverju ríki sem fullgildir samning þennan eða gerist aðili að honum eftir að tuttugasta fullgildingar- eða aðildarskjalinu hefur verið komið í vörslu skal hann öðlast gildi á þrítugasta degi eftir að fullgildingar- eða aðildarskjali þess hefur verið komið í vörslu. 50. gr. 1. Sérhvert aðildarríki má bera fram breytingartillögu og fá hana skráða hjá aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. Aðalframkvæmdastjórinn skal síðan senda hana aðildarríkjum, ásamt tilmælum um að þau tilkynni hvort þau séu því hlynnt að haldin verði ráðstefna aðildarríkja til þess að athuga tillögurnar og greiða atkvæði um þær. Ef að minnsta kosti einn þriðji aðildarríkjanna er hlynntur slíkri ráðstefnu innan fjögurra mánaða frá því er tilmælin eru borin fram skal aðalframkvæmdastjórinn boða til hennar á vegum Sameinuðu þjóðanna. Sérhver breytingartillaga, sem samþykkt er af meiri hluta þeirra aðildarríkja sem ráðstefnuna sækja og atkvæði greiða, skal lögð fyrir allsherjarþingið til samþykktar. 2. Breytingartillaga, sem samþykkt er skv. 1. tölul. þessarar greinar, skal öðlast gildi þegar allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt hana og hún hefur verið staðfest af tveimur þriðju hluta aðildarríkjanna. 3. Þegar breytingartillaga öðlast gildi er hún bindandi fyrir þau aðildarríki sem hafa staðfest hana, en önnur aðildarríki skulu áfram bundin af samningi þessum og fyrri breytingum sem þau hafa samþykkt. 51. gr. 1. Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna skal taka við og framsenda öllum ríkjum texta þeirra fyrirvara sem ríki gera er þau fullgilda samninginn eða gerast aðilar að honum. 2. Ekki er heimilt að gera fyrirvara sem ósamrýmanlegur er markmiðum og tilgangi samnings þessa. 3. Fyrirvara má afturkalla hvenær sem er með tilkynningu um það til aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, sem síðan skýrir öllum ríkjum frá því. Tilkynningin öðlast gildi á þeim degi er aðalframkvæmdastjóri tekur við henni. 52. gr. Aðildarríki getur sagt upp samningi þessum með skriflegri tilkynningu til aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. Uppsögn öðlast gildi einu ári eftir að aðalframkvæmdastjóri tekur við tilkynningunni. 53. gr. Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna er tilnefndur vörsluaðili samnings þessa. 54. gr. Frumrit samnings þessa, en arabískur, enskur, franskur, kínverskur, rússneskur og spánskur texti hans eru jafngildir, skal komið til aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna til varðveislu. |
Barnasáttmálinn
III. hluti