Please install Flash and turn on Javascript.
| Samtökin Barnaheill – Save the Children á Íslandi |
|
|
|
Vilt þú vera með?
Vertu heillavinur Bankareikningur fyrir frjáls framlög Banki 0336 - Hb 26 - Reikningsnúmer 000058 Kennitala: 521089-1059 Samtökin Barnaheill – Save the Children á Íslandi eru hluti alþjóðlegrar hreyfingar, International Save the Children Alliance. Markmið samtakanna er að tryggja réttindi barna. Barnaheill vinna að réttindum og velferð barna á Íslandi og erlendis. Barnasáttmáli Sameinuðu Þjóðanna er leiðarljós samtakanna í öllu þeirra starfi. Samtökin vinna að breytingum á högum barna í gegnum talsmannahlutverk, fræðslustarf og grasrótarverkefni. Helstu áherslur Barnaheilla hérlendis eru á barnavernd, baráttu gegn ofbeldi á börnum, þátttöku barna og á málefni barna innflytjenda. Helstu áherslur Barnaheilla á Íslandi erlendis eru á menntun barna og neyðaraðstoð.
Barnaheill eru frjáls félagasamtök. Samtökin voru stofnuð á degi Sameinuðu þjóðanna, 24. október 1989, og telja nú um 12.000 félagsmenn. Rekstur samtakanna er fjármagnaður með félagsgjöldum, fjárframlögum og fjáröflunum, þ. á m. útgáfu minningar- og jólakorta. |
Um Barnaheill