Barnaheill - Save the Children

Síbería - skólahald Prenta Tölvupóstur
 

Frá árinu 2006 hafa Barnaheill, í samstarfi við samtökin Snowchange (www.snowchange.org), stutt menntun barna í hirðingjasamfélagi í byggðinni Nutendli í Yakutiu í norðaustur Síberíu. Þar er starfræktur skóli fyrir 7-12 ára börn sem fá kennslu á sínu eigin móðurmáli og fræðslu um eigin menningu. Ef skólinn væri ekki til staðar þyrftu börnin að fara á heimavist í rússneskum skóla fjarri heimahögum og yrðu þannig slitin úr tengslum við samfélag sitt og menningu. Rússneska ríkið greiðir laun kennara í skólanum en þörf er á meiri aðstoð í skólahaldið. Á árunum 2006 og 2007 lögðu Barnaheill samtals fram 1,2 milljónir króna í verkefnið og var féð notað til að endurnýja hluta af námsefninu fyrir börnin, að endurnýja tæki í skólanum, þjálfa kennara, kaupa bíl og að greiða hita og rafmagn.

 
Ţú ert hérna :Forsíđa arrow Verkefni arrow Erlend verkefni arrow Síbería - skólahald