Barnaheill - Save the Children

Erlent samstarf Prenta Tölvupóstur
 

Barnaheill á Íslandi vinna náið með alþjóðasamtökum Barnaheilla, Save the Children í mótun stefnu og starfshátta og með þeim systursamtökum sem stýra verkefnum sem Barnaheill styðja. Árlega er haldinn fundur með forsvarsmönnum landsfélaganna 28 til að móta stefnu og samræma aðgerðir. Ársfundurinn 2007 var haldinn í Dómíníska lýðveldinu í maí og sóttu fundinn Petrína Ásgeirsdóttir framkvæmdastjóri og Dögg Káradóttir stjórnarmaður Barnaheilla.

Barnaheill eru í samstarfi við Evrópusamtök Barnaheilla, Save the Children, en aðild að þeim eiga Barnaheill í Danmörku, Bretlandi, Finnlandi og Hollandi, á Íslandi og Ítalíu, í Litháen, Noregi og Rúmeníu, á Spáni og í Svíþjóð. Markmið samstarfsins er m.a. að hafa áhrif á löggjöf og stefnu Evrópusambandsins og Evrópuráðsins um málefni er varða réttindi og velferð barna. Barnaheill hafa sérstaklega látið til sín taka í málefnum er varða ofbeldi á börnum og mansal.

 

 
Ţú ert hérna :Forsíđa arrow Verkefni arrow Erlend verkefni arrow Erlent samstarf