Barnaheill - Save the Children

Barátta gegn ofbeldi á börnum Prenta Tölvupóstur

Samkvæmt 19. gr. Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna eiga börn rétt á vernd gegn líkamlegu, kynferðislegu og andlegu ofbeldi og gegn vanrækslu. Samkvæmt 34. grein sáttmálans eiga börn rétt á vernd gegn kynferðislegu ofbeldi og gegn því að vera neydd til vændis eða þátttöku í kynlífsiðnaði. Börn eiga enn fremur rétt á hjálp ef þau hafa lent í ofbeldi.

Eitt stærsta verkefni Barnaheilla á innlendum vettvangi er að vinna gegn ofbeldi á börnum, sérstaklega kynferðislegu ofbeldi og þátt Netsins í því sambandi. Sjá nánar; Netið og kynferðislegt ofbeldi gegn börnum.

Verndum börn 

Barnaheill hafa nú opnað upplýsinga- og fræðsluvef um vernd barna gegn ofbeldi.. Markmið með vefnum er að veita upplýsingar um ofbeldi gegn börnum, einkennum, afleiðingum og hvert hægt er að leita ef grunur leikur á ofbeldi. Vefslóðin er: www.barnaheill.is/verndumborn

 

 

 

 
Ţú ert hérna :Forsíđa arrow Verkefni arrow Innlend verkefni arrow Barátta gegn ofbeldi á börnum