| Forvarnarstarf |
|
|
|
Barnaheill eiga aðild að SAMAN-hópnum, en hópurinn er samstarfsvettvangur frjálsra félagasamtaka og stofnana sem láta sig varða velferð barna. Markmiðið með starfi hópsins er að styðja og styrkja foreldra í uppeldishlutverki sínu, einkum í kringum ákveðna atburði þar sem líklegt er að aukning verði á neyslu vímuefna meðal ungmenna. SAMAN-hópurinn beitir sér fyrir jákvæðum skilaboðum til foreldra um mikilvægi ábyrgðar á umönnun og uppeldi barna sinna. Lögð er áhersla á að foreldrar verji sem mestum tíma með börnum sínum. Því er beint til foreldra að þeir kaupi ekki eða veiti börnum áfengi og bent á að þar setja landslög mörkin við 20 ára aldur. Jafnframt er beint til foreldra að virða reglur um útivistartíma og þeim bent á þær hættur sem eftirlitslaus partí, útihátíðir og neysla áfengis og annarra vímuefna setja börn þeirra í. Hópurinn lét töluvert að sér kveða á árinu, m.a. í kringum lok samræmdu prófanna, 17. júní, fyrstu helgina í júlí, um verslunarmannahelgina, á menningarnótt og um áramótin. Hópurinn var með sumarverkefni „Fjölskyldan saman með börnin í fókus".og gaf út póstkort og auglýsingaveggspjald í tengslum við það.
|
Verkefni
Innlend verkefni
Forvarnarstarf