| Bćtum framtíđ barna |
|
|
|
Mab er fulltrúi 37 milljón barna víða um heim sem hafa ekki fengið menntun vegna stríðsátaka og fátæktar. Það kostar aðeins 1.000 kr.á mánuði að veita sérhverju þessara barna gæðamenntun. Hjálpaðu okkur hjá Barnaheillum - Save the Children að bæta framtíð fleiri barna og gefa þeim von og betra líf. Sjá nánar fréttaþátt Kompásar. Alþjóðaverkefni Barnaheilla, Save the Children, Bætum framtíð barna (e. Rewrite the Future) sem hófst árið 2006 miðar að því að miðar að því að bæta líf átta milljón barna í 20 stríðshrjáðum löndum fyrir árið 2010 með gæðamenntun. Þetta gera samtökin með því að byggja skóla, þjálfa kennara, búa til námsgögn og virkja stjórnvöld, börn, foreldra og nærsamfélag þeirra. Barnaheill á Íslandi styðja verkefni í Afganistan, Kambódíu og Norður-Úganda.
Í lok ársins 2007 höfðu samtökin náð að bæta menntun meira en fimm milljón barna og í þeim hópi eru tæplega milljón börn sem ekki höfðu áður aðgang að menntun. Alls þurfa samtökin um 450 milljónir Bandaríkjadala (um 40 milljarða IKR) á alþjóðavísu til þessa verkefnis. Barnaheill á Íslandi stefna á að setja um 30 milljónir IKR í menntaverkefnið á árinu 2008. Alþjóðasamtök Barnaheilla gáfu út á árunum 2007 skýrsluna „Last in Line, Last in School". Þar kemur fram að ríkustu þjóðir heims veita frekar stuðning til menntunar barna í löndum þar sem ríkir stöðugleiki en í löndum þar sem átök ríkja eða hafa ríkt. Áætlað er að árlega þurfi um 990 milljarða IKR (11 milljarðar Bandaríkjadala) til að veita öllum börnum í stríðshrjáðum löndum gæðamenntun. Í skýrslunni kemur fram að aðeins 18% af heildarframlagi 20 ríkustu þjóða heims til menntunar í fátækum löndum fer í menntun barna í stríðshrjáðum löndum, þrátt fyrir að í þeim löndum búi um helmingur þeirra barna í heiminum sem eru án skólagöngu. Þannig eru börn í stríðshrjáðum löndum skilin eftir með litla von um að brjótast úr vítahring fátæktar og átaka. Tölur um menntunarframlög eru byggðar á upplýsingum frá DAC, þróunarsamvinnunefnd OECD. Þar sem Ísland á ekki aðild að DAC, eru ekki upplýsingar um íslensk framlög í skýrslunni. Skýrslan var kynnt alþjóðastofnunum og stjórnvöldum víða um heim, þ.á m. íslenskum stjórnvöldum. |
Verkefni
Erlend verkefni
Bćtum framtíđ barna