|
Af hverju styrkja Barnaheill? |
|
|
Vilt þú vera með?
Vertu heillavinur
Bankareikningur fyrir frjáls framlög
Banki 0336 - Hb 26 - Reikningsnúmer 000058
Kennitala: 521089-1059
Þú breytir lífi barna til batnaðar á hverjum degi
Sem styrktarfélagi Barnaheilla hjálpar þú okkur:
- að styrkja börn og réttindi þeirra, hérlendis og erlendis
- að berjast gegn ofbeldi á börnum, hérlendis og erlendis
- að veita börnum í stríðshrjáðum löndum gæðamenntun
- að veita börnum neyðaraðstoð þar sem þörfin er stærst hverju sinni
Þú hjálpar barni á réttlátan hátt
Barnaheill nýta framlag þitt og annarra styrktarfélaga samtakanna til að bæta aðstæður barna þar sem þörfin er mest hverju sinni. Þannig nýtast framlögin á áhrifaríkan og réttlátan hátt til að ná til þeirra barna sem þurfa á aðstoð að halda.
Styrktarframlagið kostar þig aðeins 33 krónur á dag
Sem styrktarfélagi greiðir þú 1.000 kr á mánuði, eða aðeins um 33 krónur á dag. Föst framlög styrktarfélaga gera Barnaheillum kleift að vinna að langtímaverkefnum sem breyta lífi barna til batnaðar á langvarandi hátt.
Þú getur treyst Barnaheillum
Barnaheill eiga aðild að Save the Children sem eru með áratuga reynslu í starfi í þágu barna og réttinda þeirra. Þau voru stofnuð í Bretlandi 1919 og á Íslandi 1989. Samtökin hafa í gegnum 90 ára sögu haft mikil áhrif á samfélög víða um heim og á alþjóðlegum vettvangi. Samtökin njóta hvarvetna virðingar og trausts. Þau eru stærstu alþjóðlegu félagasamtökin sem vinna að réttindum og velferð barna.
|