Barnaheill - Save the Children

Innlent efni Prenta Tölvupóstur

Barnheill, Save the children, hafa gefið út fræðsluefni, ársskýrslur og gert rannsóknir á málefnum sem varða börn. Hér að neðan er hægt að nálgast efnið.

Fræðsluefni:

Einn liður í fræðslu- og forvarnarverkefni samtakanna um vernd barna gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum er útgáfa bókarinnar ,,Þetta er líkaminn minn”. Bókin er skrifuð til að aðstoða fullorðna og börn á leikskólaaldri við að ræða saman um ofbeldi á opinn og óþvingaðan hátt. Barnaheill eru í samstarfi við heilsugæslustöðvar um dreifingu á bókinni og á árinu 2007 fóru tæplega 3.000 bækur til barna víða um land. Barnaheill gefa einnig út plakat þar sem vakin er athygli á slysahættum í umhverfi barna. Heilsugæslustöðvar sjá um dreifingu á plakatinu.

Fræðsluefni er hægt að panta á skrifstofu Barnaheilla, sími: 55 35900 eða Þetta netfang er varið fyrir rusltölvupósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

  • Þetta er líkaminn minn
  • Slysavarnir 

Ársskýrslur Barnaheilla

 

Rannsóknir

 
Þú ert hérna :Forsíða arrow Útgefið efni arrow Innlent efni