Barnaheill byggja allt sitt starf á frjálsum framlögum. Samtökin þakka kærlega þeim fjölmörgu aðilum sem leggja málstað þeirra lið. Án þeirra væri starf okkar ekki mögulegt.
Icelandair Group  Þann 1. janúar 2008 tók gildi þriggja ára bakhjarlasamningur Icelandair Group og Barnaheilla. Mun Icelandair Group styrkja samtökin í þrjú ár. Framlögin eru í formi beinna framlaga, flugferða með Icelandair og Flugfélagi Íslands og þjónustu Icelandair hótela.
AthygliAthygli styrkir Barnaheill með framlagi í formi ímyndar- og kynningarmála. Samstarfið hófst árið 2007.
IKEA IKEA styrkir innlend verkefni Barnaheilla um 100 krónur af hverju seldu taudýri í verslun sinni í nóvember og desember. Samstarf IKEA og Barnaheilla hófst árið 2006.
Sævar Karl  Verslunin Sævar Karl er styrktaraðili Barnaheilla vegna fjáröflunarviðburðar samtakanna Hátíð trjánna-list í þágu barna. Formlegt samstarf hófst árið 2007.
Hátíð trjánna- list í þágu barna Barnaheill standa árlega fyrir hátíðar- og fjáröflunarkvöldverðinum Hátíð trjánna – list í þágu barna, í samstarfi við listamenn og fyrirtæki. Allur ágóði rennur til innlendra og erlendra verkefna Barnaheilla.
Microsoft á ÍslandiMicrosoft á Íslandi hefur veitt Barnaheillum styrki til einstakra verkefna.
Menntaskólinn á Akureyri Nemendur í MA héldu tónleika (hér kæmi undirlinkur á fréttina http://barnaheill.vefir.net/content/view/134/30/) í lok apríl til styrktar verkefni Barnaheilla ”Bætum framtíð barna”. Nemendur MA styrktu einnig innlend verkefni Barnaheilla á árinu 2007.
Evrópusambandið Safer Internet-áætlun Evrópusambandsins hefur styrkt verkefni Barnaheilla „Stöðvum barnaklám á Netinu“ frá árinu 2001. ESB styrkir einnig netsvar.is sem er samstarfsverkefni Barnaheilla og fleiri aðila.
Stuðningur við verkefnið ”Stöðvum barnaklám á Netinu” Félagsmálaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Reykjavíkurborg, Akureyri og Kópavogur hafa um nokkurra ára skeið stutt verkefni Barnaheilla um baráttu gegn kynferðislegu ofbeldi á Netinu. Fleiri sveitarfélög og aðilar hafa einnig styrkt verkefnið. Sjá hér (http://barnaheill.vefir.net/content/view/123/52/)
UtanríkisráðuneytiðUtanríkisráðuneytið veitti Barnaheillum styrk að upphæð 10 milljónir króna á árinu 2008 til menntaverkefnis samtakanna í Norður-Úganda. Samtökin fengu einnig styrk frá Utanríkisráðuneytinu árið 2007 að upphæð 3,1 milljón króna til menntaverkefnis samtakanna í Afganistan. Utanríkisráðuneytið hefur á nær hverju ári veitt Barnaheillum styrki vegna mannúðarstarfs á hamfarasvæðum.
Ríkissjóður ÍslandsBarnaheill fengu rekstrarstyrk frá ríkissjóði Íslands að upphæð 3, 5 milljónir árið 2008.
Þróunarsjóður innflytjendamálaBarnaheill fengu styrk frá sjóðnum að upphæð ein milljón kr. árið 2008. Styrkurinn er veittur í barna- og unglingalínu Barnaheilla.
Jólakortasala BarnaheillaFjöldi einstaklinga og fyrirtækja styrkja samtökin á ári hverju með kaupum á jólakortum
Félagsmenn / heillavinirSkráðir félagsmenn Barnaheilla og heillavinir barna eru um 11.200 talsins.
Barnaheill þakka öllum þeim sem hafa styrkt samtökin. Ykkar styrkur skiptir okkur máli.
|