Styrktaraðilar verkefnisins frá upphafi eru:
- Evrópusambandið
- Félagsmálaráðuneytið
- Dómsmálaráðuneytið
- Reykjavíkurborg
- Kópavogur
- Akureyri
- Reykjanesbær
- Seltjarnarnes
- Dalvíkurbyggð
- Ólafsfjarðarkaupstaður
- Fljótsdalshreppur
- Hvítársíðuhreppur
- Sveitarféalgið Ölfuss
- Öxarfjarðarhreppur
- Síminn
- Vodafone
- Opin kerfi
- Microsoft á Íslandi
- Styrktafélagar Barnaheilla.
Barnaheill þakka öllum styrktaraðilum góðan stuðning
Á Netinu hefur orðið mikil aukning á efni, þar sem börn eru sýnd á kynferðislegan eða klámfenginn hátt. Slíkt efni er ólöglegt og brot á réttindum barna. Það er mjög mikilvægt er að stemma stigu við slíku efni, finna fórnarlömbin og koma þeim til hjálpar.
Barnaheill starfrækir ábendingarlínu, þar sem hægt er að senda inn ábendingar um vefsíður sem innihalda myndir þar sem börn eru sýnd á kynferðislegan eða klámfenginn hátt. Barnaheill eru í samstarfi við við lögreglu, netþjónustur á Íslandi og eru samtökin í alþjóðasamtökum ábendingalína, INHOPE.
Ef þú rekst á vefsíður, þar sem börn eru sýnd á kynferðislegan eða klámfenginn hátt, sendu þá inn ábendingu með því að smella á rauða hnappinn eða með því að senda
Þetta netfang er varið fyrir rusltölvupósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
Börn eru einstaklingar yngri er 18 ára. Samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna eiga börn rétt á vernd gegn kynferðislegu ofbeldi og gegn því að vera neydd til vændis eða þátttöku í kynlífsiðnaði. Börn eiga enn fremur rétt á að vera vernduð fyrir efni sem getur skaðað velferð þeirra. Öll myndbirting af börnum, þar sem þau eru sýnd á kynferðislegan eða klámfenginn hátt, oft nefnt barnaklám, er brot á rétti barna.
Framleiðsla, varsla, dreifing og skoðun á slíku efni er ólöglegt athæfi. Aðgangur barna að slíku efni á Netinu er líka brot á rétti þeirra.
Þegar kynferðislegum eða klámfengnum myndum af börnum er dreift s.s. á Neti verður það barn sem á í hlut fyrir kynferðislegu ofbeldi í hvert skipti sem myndir af því eru skoðaðar. Ofbeldið hefur því ekki einungis átt sér stað, þegar myndefnið varð til, heldur er því viðhaldið með dreifingu og birtingu. Myndefnið getur átt uppruna sinn hvar sem er í heiminum. Í meiri hluta tilfella, er það einhver sem barnið þekkir sem hefur gert myndefnið og er því, eins og annað kynferðislegt ofbeldi gegn börnum, oftast einhver nákominn barninu, sem í hlut á.
Það er mjög mikilvægt allir átti sig á að það er aldrei í lagi að nota börn í kynferðislegum tilgangi. Slíkt er þeim skaðlegt og telst ofbeldi. Erotískar eða klámfengnar myndir af börnum eru einnig stundum notaðar í auglýsingaskini og er slíkt aldrei réttlætanlegt.
|