|
Með tælingu á Netinu er átt við að fullorðinn einstaklingur setur sig í samaband við barn á Netinu og reynir að byggja upp trúnað, traust og vináttu barnsins, t.d. með því að hrósa barninu og sýna því umhyggju. Hann reynir enn fremur að skapa vantraust hjá barninu gagnvart fjölskyldu þess. Sá fullorðni segist yfirleitt vera annar en hann er, og oft að hann sé barn eða unglingur. Hann fer svo að misbjóða börnunum með klámfengnu og kynferðislegu tali og athöfnum og gera kröfur um kynferðislegar athafnir hjá barninu t.d. í gegn um vefmyndavél eða að hitta barnið. Slíkt getur haft alvarlegar afleiðingar í för með sér. Enn fremur er mikilvægt að átta sig á því, að myndir sem eru teknar í gegn um vefmyndavélar er nánast ókleift að uppræta ef þær komast í dreifngu á Netinu.
|