Barnaheill - Save the Children

Ađ finna og hjálpa fórnarlömbum Prenta Tölvupóstur

Mjög mikilvægt er að börn sem orðið hafa fyrir kynferðislegu ofbeldi fái hjálp. Þetta á ekki síður við ef myndum af þeim hefur verið dreift. Erfitt getur verið að hafa uppi á þeim börnum, sem á myndunum eru, eins og gefur að skilja. Barnaheill starfa náið með Evrópusamtökum Barnaheilla - Save the Children, sem vinna að því að bæta aðstæður barna sem orðið hafa fyrir kynferðislegu ofbeldi á Netinu. Gagnagrunnur INTERPOL, hefur að geyma yfir 500.000 myndir sem sýna kynferðislegt ofbeldi gegn meira en 20.000 börnum. Aðeins eru fyrirliggjandi upplýsingar um að 500 þessara barna hafi fundist og fengið nauðsynlegan stuðning. Evrópusamtök Barnaheilla-Save the Children vinna að því að vekja athygli á nauðsyn þess að finna þessi börn og að veita þeim tilhlýðilegan stuðning. Á árinu 2007 beittu fulltrúar Evrópusamtaka Barnaheilla sér ötullega fyrir því að í nýjum samningi Evrópuráðsins um vernd barna gegn kynferðislegri misbeitingu og kynferðislegu ofbeldi, yrði ákvæði um að hvert ríki gerði nauðsynlegar ráðstafanir til að finna börnin og sjá til þess að þau fengju viðeigandi stuðning, og að tryggðar yrðu samræmdar aðgerðir á alþjóðlegum vettvangi. Samningur Evrópuráðsins var lagður fram til undirritunar fyrir aðildarríkin í október og í 30. grein samningsins 5. lið er að finna ákvæði um skyldur ríkja til að finna börnin sem beitt eru ofbeldi og sýndar eru myndir af á Netinu.

 
Ţú ert hérna :Forsíđa arrow Verkefni arrow Innlend verkefni arrow Barátta gegn ofbeldi á börnum arrow Netiđ og kynferđislegt ofbeldi gegn börnum arrow Ađ finna og hjálpa fórnarlömbum