Barnaheill - Save the Children

Hvað getur þú gert? Prenta Tölvupóstur

• Fyrst og fremst er mikilvægt að ræða við börn og unglinga um allar þær hættur sem leynast á Netinu.

• Brýna þarf fyrir þeim að láta aldrei ókunnugum í té nafn, heimilisfang, nafn skóla eða annað þess háttar þegar spjallað er saman á Netinu.

• Eins ætti að vera sjálfsagt að fara aldrei á stefnumót við ókunnuga, þótt spjallað hafi verið saman á Netinu.

• Gott er setjast reglulega niður með börnum og unglingum fyrir framan tölvuskjáinn. Ýmislegt má læra af þeim þegar þau vafra um Netið. Börn og unglingar eru oft uppfinningasöm og fljót að tileinka sér nýja tækni.

• Ákjósanlegt er að fullorðnir hafi auga með börnum og unglingum þegar þau eru að nota Netið.

 • Láttu vita þegar þú rekst á barnaklám á Netinu. • Settu tengilinn okkar, www.barnaheill.is, á áberandi stað á vefsíðu þinni/fyrirtækisins.

• Kynntu þér búnað sem getur hindrað aðgang barna að ólöglegu og óæskilegu efni og fáðu þér slíkan búnað.

 
Þú ert hérna :Forsíða arrow Verkefni arrow Innlend verkefni arrow Barátta gegn ofbeldi á börnum arrow Netið og kynferðislegt ofbeldi gegn börnum arrow Hvað getur þú gert?