| Barna- og unglingalínan Heyrumst.is |
|
|
|
Í tilefni af tuttugu ára starfsafmæli á Íslandi í október 2009 opnuðu Barnaheill barna- og unglingavefinn heyrumst.is. Vefurinn er liður í því starfi Barnaheilla að hvetja börn og unglinga til að nýta sér þann rétt til tjáningar sem Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna tryggir þeim. Heyrumst.is er opinn vettvangur þar sem allir undir 18 ára aldri geta látið í ljós skoðanir á málefnum sem snerta þau. Á vefnum, sem er á íslensku, ensku og pólsku, geta börn og unglingar einnig leitað stuðnings og ráðgjafar á sínum forsendum og notið nafnleyndar. Barnaheill vilja að rödd barna og unglinga heyrist betur í samfélaginu en samkvæmt 12. og 13. grein Barnasáttmálans eiga þau rétt á að láta í ljós skoðanir sínar og sjónarmið og að leita sér upplýsinga. Sjálfboðaliðar Barnaheilla sjá um ráðgjöfina. Allar fyrirspurnir á Netinu verða nafnlausar, en Barnaheill munu vinna úr upplýsingunum þannig að heildstæð mynd fáist af því sem hvílir á börnum og unglingum. Barnaheill munu síðan nota upplýsingarnar til að bæta aðstæður barna í íslensku samfélagi, en málsvarahlutverkið er stór þáttur í starfi samtakanna hér á landi. Sjá nánar: www.heyrumst.is Viltu gerast sjálfboðaliði á Heyrumst.is? Smelltu hér til að fá upplýsingar Vissir þú að heyrumst.is er á facebook? |
Verkefni
Innlend verkefni
Barna- og unglingalínan