|
Um mansal á barni er að ræða þegar einstaklingur yngri en 18 ára er fluttur á milli staða, afhentur, hýstur eða tekið á móti í þeim tilgangi að hafa not af honum, þó engin merki séu um þvingun,blekkingar, valdbeitingu eða annars konar ofbeldi. Á hverju ári eru hundruð barna í Evrópu fórnarlömb mansals. Þau eru flutt á milli landa eða innan síns lands. Börnin á að nota í kynferðislegum tilgangi, við ólöglegar ættleiðingar, til að betla, stela eða við ólöglega vinnu. Barnaheill starfa náið með Evrópusamtökum Barnaheilla, Save the Children varðandi vernd barna gegn mansali. Evrópusamtök Barnaheilla leggja áherslu á að ávallt sé haft að leiðarljósi það sem barni er fyrir bestu þegar upp kemst um mansal á börnum og að staða barnsins sem innflytjanda sé aukaatriði. Tryggja verður að börnin fái áfallahjálp og aðhlynningu og fái strax aðgang að allri þjónustu, þ.e. félagsþjónustu, heilbrigðisþjónustu og skóla. Börn þurfa að fá sérstakan tilsjónarmann meðan málefni þeirra eru til athugunar og barn skal aldrei sent til síns heimalands nema tryggar aðstæður taki við því. Mikilvægt er að finna fjölskyldu barnsins án þess að stefna barninu eða fjölskyldu þess í hættu. Evrópusamtök Barnaheilla hafa komjð sjónarmiðum sínum á framfæri við Evrópuþingið og fylgjast náið með að réttur barna og sérstaða sé tryggð í samningum á þeim vettvangi. Barnaheill héldu opinn fund í desember 2007 um mansal á börnum í tengslum við 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi. Starfshópur á vegum félagsmálaráðuneytisins, sem vinnur að aðgerðaáætlun gegn mansali, óskaði í byrjun árs 2008 eftir áliti Barnaheilla og hafa samtökin miðlað upplýsingum um vinnu og áherslur Evrópusamtaka Barnaheilla í þessu samhengi.
|