|
Barnaheill á Íslandi lögðu tæpar 20 milljónir króna í menntaverkefni Barnaheilla, Save the Children, í Pader-héraði í Norður-Úganda á árinu 2008 og fengu samtökin styrk frá utanríkisráðuneytinu að upphæð 10 milljónir króna. Árið 2007 lögðu samtökin rúmar sjö milljónir króna í uppbyggingu menntastarfs þar.
Stríðsátökin í Norður-Úganda sl. 20 ár hafa komið í veg fyrir menntun fjölda barna og er ástandið einna verst í Pader-héraði þar sem mikill fjöldi fólks hefur þurft að flýja heimili sín og dvelur í flóttamannabúðum.
Árið 2004 voru 63% af skólum í Norður-Úganda ekki lengur í notkun og u.þ.b. 500.000 börn sóttu skóla í miðstöðvum sem settar voru á fót fyrir börn flóttamanna. Hlutfall barna sem ljúka grunnmenntun er lágt eða allt að 26% meðal stúlkna í Pader-héraði. Um 46,8 % sex ára barna eru ekki innrituð í skóla og stórt hlutfall barna í öðrum aldurshópum sækja ekki skóla. Úttekt sem Barnaheill, Save the Children í Úganda og opinber starfshópur unnu að í sameiningu á aðstæðum í Pader-héraði leiddi í ljós mikla vöntun á viðunandi kennsluaðstöðu og hæfum kennurum.
Eitt af því sem einkennir átökin í Norður-Úganda er að fjölda barna hefur verið rænt af uppreisnarhernum LRA (Lord's Resistance Army) og þau verið neydd í hermennsku. Barnaheill - Save the Children hafa starfað í Úganda frá árinu 1990. Samtökin vinna m.a. að því að veita börnum vernd og menntun og að hjálpa barnahermönnum að aðlagast samfélagi sínu að nýju. Barnaheill í Úganda vinna náið með stjórnvöldum og heimamönnum við að byggja upp mennta- og heilbrigðiskerfi í norðurhluta landsins. Meðal langtímaverkefna Barnaheilla í Úganda er að veita 260.000 börnum á stríðshrjáðum svæðum landsins gæðamenntun fyrir árið 2011.
Verkefnið sem Barnaheill á Íslandi styðja í Pader-héraði miðar að því að auka skólaaðgang og bæta gæði menntunar meira en 30 þúsund barna í héraðinu fram til ársins 2011. Þúsundir þeirra dvelja eða hafa dvalið í flóttamannabúðum. Sérstök áhersla er lögð á að ná til barna sem ekki eru í skóla og þá sérstaklega til stúlkna, að bæta kennsluaðferðir og kennsluumhverfi og að styðja menntayfirvöld í því að efla menntun og vernda börn á átakasvæðum gegn ofbeldi og misnotkun. Fyrir fjármagn frá Barnaheillum á Íslandi hafa verið byggðir skólar og kennarabústaðir með allri nauðsynlegri aðstöðu. Haldin hafa verið þjálfunarnámskeið fyrir kennara og skólayfirvöld og haldnir fræðslufundir með skólafólki, foreldrum og fleirum um réttindi barna. Sömuleiðis hafa verið námskeið fyrir börn til að fræða þau um réttindi sín og virkja þau til að taka þátt í skólastarfi og uppbyggingu samfélagsins. Kennarar, foreldrar og börn hafa fengið fræðslu um heilsuvernd og varnir gegn sjúkdómum, þ. á m. alnæmi. Námsgögnum hefur verið dreift til fjölda barna og þátttaka foreldra í skólastarfi hefur verið efld. Margt hefur áunnist en verkefnin eru óþrjótandi í Norður-Úganda. Barnaheill á Íslandi stefna að því að styðja menntastarf í stríðshrjáðum héruðum Norður-Úganda næstu árin.
|