|
Í lok ársins 2007 lögðu Barnaheill um 3,6 milljónir kr. í menntaverkefni Barnaheilla, Save the Children í Kambódíu. Verkefnið nær til barna í Chom Kar Leu héraði í Kompong Cham sýslu í norðaustur Kambódíu, en um 30% barnanna á svæðinu eru ekki í skóla. Unnið er að því að byggja skóla, setja upp bókasafn, þjálfa kennara og leiðbeinendur og koma upp menntamiðstöðvum fyrir eldri börn sem ekki hafa lokið grunnskóla.
Í lok ársins 2006 lögðu Barnaheill fram átta milljónir króna í uppbyggingu á skólastarfi barna í Stoeung Trong héraði í Kompong Cham sýslu í Kambódíu. Fyrir það fé voru byggðir skólar í Veal Bompong og Otasek með allri nauðsynlegri aðstöðu Kennarar fengu þjálfun og haldnir voru fundir með foreldrum um mikilvægi menntunar fyrir börn þeirra.Vinnuhópar, barnaráð og skólaskipulagsnefndir voru sett á laggirnar til að efla þátttöku barna í skólastarfi og til að hvetja börn sem hafa verið án skólagöngu að skrá sig. Níu skólar fengu kennsluefni, s.s. orðabækur og sögubækur. Kennarar og foreldrar fengu fræðslu um varnir gegn fuglaflensu, malaríu og öðrum sjúkdómum.
Foreldrar fengu þjálfun í að örva þroska barna sinna og að koma upp foreldrareknu leikskólastarfi.Verkefnið bætti menntun tæplega 700 barna á grunnskólaaldri og 300 barna á leikskólaaldri í fátæku héraði í Kambódíu þar sem átök ríktu fram til ársins 2000. Fyrir tilstilli Barnaheilla á Íslandi hafa um 900 börn á grunnskólaaldri fengið aðgang að góðu skólahúsnæði og um 300 börn á leikskólaaldri fengið aðgang að leikskólastarfi. Alls hafa um 23.000 börn notið góðs af uppbyggingarstarfi Barnaheilla á Íslandi í Kambódíu á einn eða annan hátt. Miklu máli skiptir að virkja allt samfélagið til að verkefnin verði sjálfbær og Barnaheill í Kambódíu vinna náið með fræðsluyfirvöldum þar í landi. Ólæsi er mikið í landinu og enn eru um 50 þúsund börn án skólagöngu í landinu og bæta þarf menntun hundruð þúsunda barna. Þörfin er því mikil og munu Barnaheill á Íslandi styðja uppbyggingu menntastarfs í Kambódíu næstu þrjú árin a.m.k. og stefna að því að leggja til árlega átta milljónir króna.
|