| Réttindi barna |
|
|
|
Barnaheill vinna á grundvelli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og hafa hann að leiðarljósi í starfi sínu. Þessi sáttmáli, sem í daglegu tali er nefndur Barnasáttmálinn, var samþykktur á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 20. nóvember 1989 en var fullgiltur á Íslandi 27. nóvember 1992. Sáttmálinn felur í sér skuldbindandi samkomulag þjóða heims um sérstök réttindi börnum til handa, óháð réttindum hinna fullorðnu. Umsagnir um lagafrumvörpBarnaheill senda reglulega inn umsagnir til Alþingis um lagafrumvörp er varða málefni barna. Í umsögnum sínum leitast samtökin við að hafa hagsmuni barna að leiðarljósi. SímaráðgjöfEinn þáttur í starfi Barnaheilla er símaráðgjöf þar sem foreldrar og aðrir geta leitað upplýsinga um réttindi barna. Allmargir leita til samtakanna og eru flestar fyrirspurnir um lögfræðileg álitaefni. Málin eru af ýmsum toga, s.s. forsjármál, umgengnismál og réttindamál ásamt almennum fyrirspurnum um mál er varða börn. Gegn mismunun á öllum skólastigumBarnaheill studdu verkefnið "Gegn mismunun áöllum skólastigum". Verkefnið er samstarfsverkefni Háskólans á Akureyri, Menntaskólans áAkureyri og skóladeildar Akureyrarbæjar og miðar það að uppbyggingu móðurskóla í mannréttindum og lýðræði. |
Verkefni
Innlend verkefni
Réttindi barna