Barnaheill - Save the Children

Prenta Tölvupóstur
"Any steps towards  helping  children in need is an investment"
Alistair Macintyre

  

Hátíð trjánna 2008 - list í þágu barna

Listaverk til sölu til styrktar Barnaheillum, Save the Children, á Íslandi.

Hátíð trjánna – list í þágu barna, samstarfsverkefni Barnaheilla og listamanna, er nú haldið fjórða árið í röð en með öðru sniði en undanfarin ár vegna aðstæðna í samfélaginu. Listaverk eftir ellefu þjóðþekkta listamenn eru til sýnis og sölu fram í janúarlok 2009 hjá Sævari Karli og Gallerí Fold. Um er að ræða ný og glæsileg verk, bæði skúlptúra og málverk, og tileinka listamennirnir starfi Barnaheilla verk sín. Þema verkanna er tré og af því dregur viðburðurinn nafn sitt. Samstarf Barnaheilla og listamannanna er mikilvæg fjáröflunarleið fyrir samtökin og þakka Barnaheill listamönnunum kærlega fyrir ómetanlegan stuðning.

Til stóð að hafa uppboð á verkunum þann 20. nóvember sl. en var hætt við vegna dræmrar þátttöku. Því var ákveðið að fara þá leið að hafa listaverkin til sýnis hjá Sævari Karli og Galleri Fold og hægt er að bjóða í verkin þar. Einnig er hægt að bjóða í verkin á vefnum
www.myndlist.is

Athugið að sum verkanna eru þegar seld.

  


 

 


Bæklingur
Smellið á myndina til opna skjalið

Styrktaraðilar

Sævar Karl Gallerí Fold Hilton Hotel Reykjavík






Samstarfsaðilar

Gallery Turpentine
Studio Stafn

Þakkir

Aðalheiður Héðinsdóttir
Elsa Einarsdóttir
Harpa Þórsdóttir
Helga Sverrisdóttir
Gísli Einarsson
Guðlaug Halldórsdóttir
Ragnhildur Skarphéðinsdóttir
 
Ţú ert hérna :Forsíđa arrow Styrktarađilar arrow Hátíđ trjánna 2008