Barnaheill - Save the Children

Hvað gera Barnaheill? Prenta Tölvupóstur

Eitt af stærstu verkefnum Barnaheilla frá upphafi hefur verið að berjast gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum og myndbirtingum á Netinu, þar sem börn eru sýnd á kynferðislegan eða klámfenginn hátt. Barnaheill hafa frá árinu 2001 tekið þátt í alþjóðlega samstarfsverkefninu, Stöðvum barnaklám á Netinu. Verkefnið hefur verið styrkt af Safer Internet áætlun ESB. Markmið verkefnisins er að vekja athygli almennings, lögreglu, löggjafans, netþjónustuaðila, barnaverndaryfirvalda og fleiri hlutaðeigandi aðila á þætti Netsins í kynferðislegu ofbeldi á börnum og að þrýsta á að íslensk stjórnvöld axli ábyrgð í þessum málaflokki hérlendis og á alþjóðavettvangi. Samstarf við þessa aðila er því mikilvægur þáttur í verkefninu. Erfitt getur verið, og jafnvel ógerleg, að koma í veg fyrir og útrýma slíku efni af Netinu. Okkur ber samt skylda til að gera allt sem í okkar valdi stendur til að stemma stigu við slíku efni. Tekist hefur að uppræta mikið af efni og jafnvel koma upp um heilu barnaklámshringina. Það er ekki síst vegna aukinnar meðvitundar almennings og mikils starfs sem unnið er víða um heim hjá lögreglunni og frjálsum félagasamtökum eins og Barnaheillum.

Frá árinu 2001 hafa Barnaheill starfrækir ábendingarlínu, þar sem hægt er að senda inn ábendingar um vefsíður sem innihalda myndir þar sem börn eru sýnd á kynferðislegan eða klámfenginn hátt. Barnaheill eru í samstarfi við við lögreglu, netþjónustur á Íslandi og eru samtökin í alþjóðasamtökum ábendingalína, INHOPE. Ef þú rekst á vefsíður, þar sem börn eru sýnd á kynferðislegan eða klámfenginn hátt, sendu þá inn ábendingu hér eða með því að senda tölvupóst. Þetta netfang er varið fyrir rusltölvupósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það. Allar ábendingar fara beint til embættis ríkislögreglustjóra, þar sem þær eru skoðaðar og athugað er hvort efnið sem bent er á reynist fela í sér ólöglegt efni. Ef svo er, er athugað hvert upprunaland efnisins er og sent til viðkomandi lögregluyfirvalda sem hefja rannókn á málinu. þeir sem senda ábendingu njóta nafnleyndar sé eftir því óskað að hálfu þess sem tilkynnir. Barnaheill er í samstarfi við netþjónustuaðila um að koma á svokallaðri síun, eða lokun á síðum sem innihalda barnaklám. Foreldrar og skólar geta líka með ýmsum hætti haft áhrif á hvað börn skoða í tölvunni.

 
Þú ert hérna :Forsíða arrow Verkefni arrow Innlend verkefni arrow Barátta gegn ofbeldi á börnum arrow Netið og kynferðislegt ofbeldi gegn börnum arrow Hvað gera Barnaheill?