Barnaheill - Save the Children

Jarðskjálftinn á Haítí

Samtökin Barnaheill – Save the Children á Íslandi

Barnaheill, Save the Children, á Íslandi eru hluti af alþjóðasamtökunum International Save the Children Alliance. Alþjóðasamtökin vinna að réttindum og velferð barna í 120 löndum og hafa Barnasáttmála Sameinuðuð þjóðanna að leiðarljósi. Hérlendis leggja Barnaheill áherslu á að standa vörð um réttindi barna, á þátttöku barna og á vernd barna gegn ofbeldi. Erlendis styðja Barnaheill á Íslandi menntun barna og mannúðarstarf vegna hamfara.

Samverustund Barnaheilla hjá Rósinni í Laugardal vegna jarđskjálftans á Haítí Prenta Tölvupóstur

RósinBarnaheill, Save the Children, á Íslandi standa fyrir stuttri samverustund hjá minnismerkinu Rósinni við Þvottalaugarnar í Laugardal þriðjudaginn 2. febrúar kl. 12.00. Stundin er tileinkuð þeim börnum sem hafa látist eða eiga um sárt að binda vegna jarðskjálftanna á Haítí.

Milljónir barna hafa orðið fórnarlömb jarðskjálftans á Haítí með einum eða öðrum hætti. Börn hafa misst lífið, hafa særst eða misst foreldra eða systkini í jarðskjálftanum.

Hugurinn er hjá þessum börnum, lagðar verða rósir við minnismerkið til að minnast barnanna og allra þeirra sem eiga um sárt að binda vegna hamfaranna.

Barnaheill, Save the Children hafa starfað á Haítí í 30 ár og hafa unnið að hjálparstarfi þar frá fyrsta degi jarðskjálftans.
Rósin er alþjóðlegt minnismerki óþekkta barnsins um von og trú og er ætlað að vera sameiningartákn fyrir börn á Íslandi og um allan heim.

Í samverustundinni verður kór Laugarnesskóla með tónlistaratriði, forsvarsmenn Barnaheilla flytja stutt ávörp og barn segir reynslusögu barns á Haítí.

Samverustundin er öllum opin og hvetjum við sem flesta að mæta til að sýna samstöðu með öllum þeim sem eiga um sárt að binda á Haítí.

 
Heyrumst.is
Vertu heillavinur
Minningarkort Barnaheilla
Kaupa tækifærisgjafir til styrktar Barnaheillum
Verndum börn gegn ofbeldi
Stöðvum
Barnasattmali.is
Netsvar

Kompás í Kambódíu

Kompás þáttur um Kambódíu

Bakhjarl Barnaheilla

icelandair_group_150px.jpg
Ţú ert hérna :Forsíđa arrow Forsíđa arrow Samverustund Barnaheilla hjá Rósinni í Laugardal vegna jarđskjálftans á Haítí