Barnaheill - Save the Children

Jarðskjálftinn á Haítí

Samtökin Barnaheill – Save the Children á Íslandi

Barnaheill, Save the Children, á Íslandi eru hluti af alþjóðasamtökunum International Save the Children Alliance. Alþjóðasamtökin vinna að réttindum og velferð barna í 120 löndum og hafa Barnasáttmála Sameinuðuð þjóðanna að leiðarljósi. Hérlendis leggja Barnaheill áherslu á að standa vörð um réttindi barna, á þátttöku barna og á vernd barna gegn ofbeldi. Erlendis styðja Barnaheill á Íslandi menntun barna og mannúðarstarf vegna hamfara.

,,Ég biđ fyrir ţeim á hverjum degi”. Íslensk börn koma saman og minnast barna á Haítí Prenta Tölvupóstur
samverustund barna hjá Rósinni Barnaheill, Save the Children, á Íslandi stóðu fyrir stuttri samverustund hjá minnismerkinu Rósinni við Þvottalaugarnar í Laugardal þriðjudaginn 2. febrúar og var stundin tileinkuð þeim börnum sem hafa látist eða eiga um sárt að binda vegna jarðskjálftanna á Haítí. Rósin er alþjóðlegt minnismerki óþekkta barnsins um von og trú og er ætlað að vera sameiningartákn fyrir börn á Íslandi og um allan heim. Meira en 100 börn tóku þátt í samverustundinni, nemendur í þriðja bekk Laugarnesskóla og börn frá Leikskólanum Njálsborg og lögðu þau m.a. rósir að minnismerkinu.

Rósa Diljá Gísladóttir, nemandi í Laugarnesskóla las reynslusögu Andrise, 9 ára gamallrar stúlku á Haítí og las hún m.a.: ”Ég var að baða mig daginn sem jarðskjálftinn varð, þegar húsið byrjaði að hristast og hristast. Litla frænka mín stóð við hliðina á mér og við urðum mjög hræddar og hlupum inn.Þegar við komum inn, þá hrundi einn veggurinn á húsinu á gólfið. Húsið við hliðina á okkur hrundi og tvö lítil börn sem voru þar inni dóu. Ég hélt að við værum öll að deyja. Ég hélt að það væri komin heimsendir".

Íslensku börnin eru mjög meðvituð um það ástand sem er til staðar hjá börnunum á Haítí og tjáðu sig um það:

 “Ég bið fyrir þeim á hverjum degi og hugsa til þeirra”.

“Ég vona að þeir byggi núna hús með járni í, svo þau hrynji ekki”.

Börn eru alltaf meðal þeirra berskjölduðustu í hamförum og svo er einnig á Haítí. Jarðskjálftinn gerði þúsundir fjölskyldna heimilislausar og hefur neytt þær til að búa á götum úti við allsleysi.

Fjöldi barna eru án fullnægjandi umönnunar og eru aðskilin frá foreldrum sem hugsanlega hafa látist eða eru slasaðir og því er aukin hætta á að börnin verða fórnarlömb mansals eða verði misnotuð kynferðislega. Talið er að a.m.k. ein milljón barna séu nú án umönnunar og séu munaðarlaus eða hafi misst annað foreldri. Barnaheill, Save the Children, vinna að því í samvinnu við Sameinuðu þjóðirnar og fleiri samtök að finna ættingja barnanna.

Barnaheill, Save the Children, hafa starfað á Haítí frá 1978. Frá því jarðskjálftinn varð hafa samtökin aðstoðað meira en 100 þúsund manns með matargjöfum, vatni og öðrum nauðsynjum. Þau hafa komið upp nokkrum sjúkrahúsum og hafa þjálfað fjölda heilbrigðisstarfsmanna. Samtökin hafa jafnframt komið upp fjölda neyðarskýla og svæðum fyrir börn þar sem áhersla er lögð á að veita þeim öryggi og sálrænan stuðning og að koma lífi þeirra í fastar skorður. Barnaheill vinna einnig að því að koma upp bráðabirgða skólaaðstöðu fyrir börn, þannig að þau geti haldið áfram skólagöngu og fengið nauðsynlegan stuðning og aðstoð.

 
Heyrumst.is
Vertu heillavinur
Minningarkort Barnaheilla
Kaupa tækifærisgjafir til styrktar Barnaheillum
Verndum börn gegn ofbeldi
Stöðvum
Barnasattmali.is
Netsvar

Kompás í Kambódíu

Kompás þáttur um Kambódíu

Bakhjarl Barnaheilla

icelandair_group_150px.jpg
Ţú ert hérna :Forsíđa arrow Forsíđa arrow ,,Ég biđ fyrir ţeim á hverjum degi”. Íslensk börn koma saman og minnast barna á Haítí