Barnaheill, Save the Children, á Íslandi eru hluti af alþjóðasamtökunum International Save the Children Alliance. Alþjóðasamtökin vinna að réttindum og velferð barna í 120 löndum og hafa Barnasáttmála Sameinuðuð þjóðanna að leiðarljósi. Hérlendis leggja Barnaheill áherslu á að standa vörð um réttindi barna, á þátttöku barna og á vernd barna gegn ofbeldi. Erlendis styðja Barnaheill á Íslandi menntun barna og mannúðarstarf vegna hamfara.
| Utanríkisráđuneytiđ veitir Barnaheillum, Save the Children, 5 milljóna króna fjárstyrk |
|
|
|
Frá því jarðskjálftinn varð hafa Barnaheill aðstoðað um 200 þúsund manns með matargjöfum, vatni og öðrum nauðsynjum. Samtökin hafa komið upp nokkrum sjúkrahúsum og þjálfað fjölda heilbrigðisstarfsmanna. Fjöldi barna er án fullnægjandi umönunnunar og aðskilin frá foreldrum sem hugsanlega hafa látist eða eru slasaðir og því aukin hætta á að börnin verði fórnarlömb mansals eða verði misnotuð kynferðislega. Talið er að a.m.k. ein milljón barna sé nú án umönnunar, munaðarlaus eða hafi misst annað foreldri. Þessi fjöldi er helmingi hærri en var fyrir jarðskjálftann. Barnaheill vinna að því í samvinnu við Sameinuðu Þjóðirnar og fleiri samtök að sameina börn og ættingja þeirra. Barnaheill hafa jafnframt komið upp fjölda neyðarskýla og svæðum fyrir börn og fjölskyldur þar sem áhersla er lögð á að veita börnum öryggi og sálrænan stuðning. Samtökin vinna einnig að því að koma upp bráðabirgða skólaaðstöðu fyrir börn, þannig að þau geti haldið áfram skólagöngu og fengið nauðsynlegan stuðning og aðstoð. "Stuðningur utanríkisráðuneytisins er mikilvægur fyrir það mikla starf sem Barnaheill, Save the Children eru að vinna á Haítí", segir Petrína Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla á Íslandi. Barnaheill, Save the Children, hafa nú þegar unnið fimm ára fjölþátta áætlun sem miðar að því að tryggja a.m.k. 600 þúsund manns, þar af 368 þúsund börnum, heilsugæslu, húsnæði, vernd, menntun, vatn, hreinlætisaðstöðu, næringu og mataröryggi á næstu árum. |
Barnaheill |
Verkefni Barnaheilla erlendis
|
Verkefni Barnaheilla hérlendis |