Barnaheill - Save the Children

Jarðskjálftinn á Haítí

Samtökin Barnaheill – Save the Children á Íslandi

Barnaheill, Save the Children, á Íslandi eru hluti af alþjóðasamtökunum International Save the Children Alliance. Alþjóðasamtökin vinna að réttindum og velferð barna í 120 löndum og hafa Barnasáttmála Sameinuðuð þjóðanna að leiðarljósi. Hérlendis leggja Barnaheill áherslu á að standa vörð um réttindi barna, á þátttöku barna og á vernd barna gegn ofbeldi. Erlendis styðja Barnaheill á Íslandi menntun barna og mannúðarstarf vegna hamfara.

Barnaheill, Save the Children, leggja áherslu á vernd barna eftir jarđskjálftana í Chile
01. mars 2010
Alþjóðasamtök Barnaheilla eru meðal þeirra samtaka sem veita börnum og fjölskyldum þeirra aðstoð og stuðning í kjölfar jarðskjálftanna í Chile. Þau minna á að hundruð þúsunda barna eiga um sárt að binda eftir jarðskjálftana og leggja áherslu á að börnin fái nauðsynlega vernd og nauðsynlegan stuðning.
Lesa meira...
 
Utanríkisráđuneytiđ veitir Barnaheillum, Save the Children, 5 milljóna króna fjárstyrk
08. febrúar 2010

Barnaheill, Save the Children fengu nýverið fimm milljóna króna fjárstyrk frá utanríkisráðuneytinu til neyðaraðstoðar á Haítí. Barnaheill, Save the Children, hafa starfað á Haítí frá árinu 1978. Frá því jarðskjálftinn varð hafa þau aðstoðað um 200 þúsund manns með matargjöfum, vatni og öðrum nauðsynjum. Samtökin hafa komið upp nokkrum sjúkrahúsum og hafa þjálfað fjölda heilbrigðisstarfsmanna.

Fjöldi barna eru án fullnægjandi umönunnunar og eru aðskilin frá foreldrum sem hugsanlega hafa látist eða eru slasaðir og því aukin hættu á að börnin verða fórnarlömb mansals eða verði misnotuð kynferðislega. Talið er að a.m.k. ein milljón barna séu nú án umönnunar og séu munaðarlaus eða hafi misst annað foreldri. Þessi fjöldi er helmingi hærri en var fyrir jarðskjálftann.

Barnaheill vinna að því í samvinnu við Sameinuðu Þjóðirnar og fleiri samtök að sameina börn og ættingja þeirra.

Lesa meira...
 
,,Ég biđ fyrir ţeim á hverjum degi”. Íslensk börn koma saman og minnast barna á Haítí
02. febrúar 2010
samverustund barna hjá Rósinni Barnaheill, Save the Children, á Íslandi stóðu fyrir stuttri samverustund hjá minnismerkinu Rósinni við Þvottalaugarnar í Laugardal þriðjudaginn 2. febrúar og var stundin tileinkuð þeim börnum sem hafa látist eða eiga um sárt að binda vegna jarðskjálftanna á Haítí. Rósin er alþjóðlegt minnismerki óþekkta barnsins um von og trú og er ætlað að vera sameiningartákn fyrir börn á Íslandi og um allan heim. Meira en 100 börn tóku þátt í samverustundinni, nemendur í þriðja bekk Laugarnesskóla og börn frá Leikskólanum Njálsborg og lögðu þau m.a. rósir að minnismerkinu.

Rósa Diljá Gísladóttir, nemandi í Laugarnesskóla las reynslusögu Andrise, 9 ára gamallrar stúlku á Haítí og las hún m.a.: ”Ég var að baða mig daginn sem jarðskjálftinn varð, þegar húsið byrjaði að hristast og hristast. Litla frænka mín stóð við hliðina á mér og við urðum mjög hræddar og hlupum inn.Þegar við komum inn, þá hrundi einn veggurinn á húsinu á gólfið. Húsið við hliðina á okkur hrundi og tvö lítil börn sem voru þar inni dóu. Ég hélt að við værum öll að deyja. Ég hélt að það væri komin heimsendir".
Lesa meira...
 
Heyrumst.is
Vertu heillavinur
Minningarkort Barnaheilla
Kaupa tækifærisgjafir til styrktar Barnaheillum
Verndum börn gegn ofbeldi
Stöðvum
Barnasattmali.is
Netsvar

Kompás í Kambódíu

Kompás þáttur um Kambódíu

Bakhjarl Barnaheilla

icelandair_group_150px.jpg
Ţú ert hérna :Forsíđa