|
Verndum börn gegn ofbeldi |
|
Börn
Ofbeldi gegn börnum á aldrei að líðast þar sem það getur haft mjög alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir þann sem í því lendir. Börn eiga samkvæmt 19. grein Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskum lögum rétt á vernd gegn líkamlegu, andlegu og kynferðislegu ofbeldi og vanrækslu. Ofbeldi og vanræksla gagnvart börnum, í hvaða mynd sem er, er því brot á lögum og alvarlegt brot á réttindum barna. Samkvæmt barnaverndarlögum telst einstaklingur vera barn til 18 ára aldurs og foreldrum/forsjáraðilum ber skylda samkvæmt barnalögum að vernda barn sitt gegn andlegu og líkamlegu ofbeldi og annarri vanvirðandi háttsemi.
Samkvæmt Barnasáttmálanum skulu allir sem taka ákvarðanir fyrir börn taka mið af því sem er börnum fyrir bestu og þeir sem stjórna landinu skulu gera allt sem þeir geta til að réttindi barna séu virt.
Barnaheill hefur Barnasáttmala Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi í starfi sínu. Barnaheill hafa frá upphafi unnið að réttindum barna og velferð og eitt af meginverkefnum samtakanna er að berjast gegn ofbeldi á börnum. Þessi vefsíða hefur að geyma upplýsingar um ofbeldi á börnum, einkenni, afleiðingar og hvert er hægt að leita ef grunur vaknar um ofbeldi á barni. Vefsíðan er ætluð öllum almenningi og ekki síst þeim sem starfa með og að málefnum barna.
- Allir eru skyldugir samkvæmt íslenskum lögum að tilkynna til 1-1-2 Neyðarlínu, barnaverndarnefnda eða lögreglu ef það hefur grun um að barn sé beitt ofbeldi, verði fyrir áreitni eða búi við óviðunandi uppeldisaðstæður.
- Leifum börnum að njóta vafans ef við höfum grun um að brotið sé á rétti þeirra og látum fagfólk skoða málið og grípa til aðgerða ef þess reynist þörf. EKKI HIKA VIÐ AÐ TILKYNNA.
- Þeir sem tilkynna geta óskað nafnleyndar gagnvart öllum aðilum málsins nema barnaverndarstarfsmanni. Það er gert til þess að hægt sé að hafa samband aftur til að fá nánari upplýsingar ef þarf.
- Það er ekkert til sem heitir stéttarskipting á ofbeldi og vanrækslu gagnvart börnum, það þekkist í öllum stigum þjóðfélagsins.
Barnasáttmálinn
-
Samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem íslensk stjórnvöld staðfestu árið 1992, þá eiga öll börn rétt á vernd óháð búsetu, útliti, kyni, trú, siðum eða venjum þeirra eða foreldra þeirra.
-
Börn eiga rétt á vernd gegn öllu ofbeldi, líkamlegu, andlegu og kynferðislegu, og þau eiga rétt á hjálp ef þau hafa orðið fyrir slíku.
-
Þá skulu allir sem taka ákvarðanir fyrir börn taka mið af því sem er börnum fyrir bestu og þeir sem stjórna landinu skulu gera allt sem þeir geta til að réttindi barna séu virt.
Barnasáttmálinn
Vísbendingar um vanlíðan hjá barni
- Skapsveiflur
- Mikill grátur
- Minnkandi matarlyst og breytingar á matarvenjum
- Breytingar á hegðun í skóla eða gagnvart öðru fólki
- Persónuleika breytingar
- Óframfærni/hlédrægni
- Hræðsla við að fara heim og strjúka að heiman
- Á í erfiðleikum með að einbeita sér
- Hefur óútskýrða hræðslu eins og við myrkur, að vera eitt, hræðsla við ákveðið fólk eða staði eins og svefnherbergi eða salerni
- Svefnvandamál, martraðir og/eða hræðsla við að fara að sofa eða sofa eitt.
ATH: Nauðsynlegt er að bregðast við ef barn sýnir breytta hegðun hins vegar er ekki alltaf um breytta hegðun að ræða ef barn er misnotað, beitt ofbeldi eða vanrækt.
|
|
|