Landssöfnun Verndara barna haldin á hverju ári

Á hverju ári frá árinu 2010 hafa samtökin staðið fyrir landssöfnun með sölu á ljósi sem jafnframt er lyklakippa.  Söfnunin stendur yfir mánaðarmótin apríl – maí ár hvert, en vegna Covid-19 verður landssöfnunin haldin 24. ágúst - 6. september í ár.

Ljósið kostar 2000 kr. og eru bæði einstaklingar, íþróttafélög og félagasamtök um allt land að styðja Barnaheill með því að selja ljósið.

Ef þú eða þitt fyrirtæki viljið fræðast um verkefnið og hvernig hægt væri að styrkja verkefnið á annan hátt vinsamlegast hafðu samband í síma 553-5900 eða sendu á okkur póst á verndararbarna@barnaheill.is

Með þinni hjálp munum við ótrauð halda starfi okkar áfram.

Hafið kærar þakkir.