Klárir krakkar - um Barnasáttmálann

Nemendur úr Hofsstaðaskóla og fulltrúar úr ungmennaráði Barnaheilla velta upp ýmsum hliðum Barnasáttmálans og tala um mannréttinda barna.

Myndbandið er birt í tilefni Dags mannréttinda barna.

Í vor var samþykkt á Alþingi að helga afmælisdag barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, 20. nóvember ár hvert, fræðslu í skólum landsins um mannréttindi barna. Barnaheillum - Save the Children á Íslandi var falið af innanríkisráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra að sjá um framkvæmd dagsins og hafa samtökin í samvinnu við ráðuneytin sett upp vefsvæðið www.barnaheill.is/dagurmannrettindabarna sem er helgað þessari fræðslu.

Þar má finna ýmsar upplýsingar og hugmyndir að viðfangsefnum og verkefnum sem skólar geta nýtt sér í tilefni dagsins. Efninu hefur verið skipt upp í efni fyrir leikskóla, fyrir grunnskóla og fyrir framhaldsskóla. Grunnskólaefninu hefur auk þess verið skipt upp í yngsta stig, miðstig og unglingastig. Barnaheill hafa framleitt fjögur myndbönd í tilefni dagsins og við hvetjum kennara til að sýna þau á deginum sjálfum, en einnig eru þau tilvalin til sýninga allt árið þegar mannréttindi barna eru til umræðu. Einnig er að finna eldri myndbönd um mannréttindi barna á spilunarlista: https://www.youtube.com/playlist?list...

Þar sem 20. nóvember ber nú upp á sunnudegi, eru leik-, grunn- og framhaldsskólar hvattir til að helga föstudaginn 18. nóvember mannréttindum barna.

Á samfélagsmiðlum gengur fræðsluátakið undir myllumerkinu #dagurmannrettindabarna.

Bestu óskir um gott gengi og góða skemmtun á Degi mannréttinda barna.