Barnaheill óska eftir tilnefningum til Viðurkenningar Barnaheilla

Árlega veita Barnaheill – Save the Children á Íslandi viðurkenningu fyrir sérstakt framlag í þágu barna og mannréttinda þeirra í tengslum við afmæli barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna þann 20. nóvember. Viðurkenningin er afhent til að vekja athygli á Barnasáttmálanum og mikilvægi þess að íslenskt samfélag standi vörð um mannréttindi barna.  

Barnaheill óska eftir tilnefningum til Viðurkenningar Barnaheilla 2021. Öllum er frjálst að senda inn tilnefningu. Tilnefningarnar fara fram í gegnum vefsíðu Barnaheilla hér, en hægt er að tilnefna einstaklinga, félagasamtök, stofnun eða aðra hópa.