Biomega vítamín til stuðnings Barnaheillum

Icepharma er fyrirtæki mánaðarins í Heillakeðju barnanna. Fyrirtækið styður barnaheill með því að láta allan ágóða af Biomega barnavítamínínu renna til samtakanna. Icepharma efnir enn fremur til átaks innan fyrirtækisins og starfsmenn mynda heillakeðju á áheitavef samtakanna heillakedjan.is.

Biomega er íslensk vítamínlína sem samanstendur af 23 gerðum vítamína og þar af eru 5 gerðir ætlaðar börnum á aldrinum 2-5 ára. Um er að ræða Barnafjör, Barnavítamínus, Barna C- vítamín, Barna D-vítamín og Barnakalk. Allt eru þetta bragðgóðar tuggutöflur sem flestum börnum líka vel. Línan er framleidd og pökkuð á Grenivík fyrir Icepharma.

Markmiðið með Heillakeðju barnanna er að standa vörð um og vekja athygli á réttindum barna sem tíunduð eru í barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og safna fé til styrktar verkefna í þágu barna á vegum Barnaheilla. Sjaldan hefur verið brýnna en nú að standa vörð um málefni þeirra. Í hverjum mánuði er valið eitt þema úr barnasáttmálanum. Þema októbermánaðar er út frá 24. grein barnasáttmálans og fjallar um heilbrigt líferni, í því felst meðal annars réttur til fæðu og næringar.

Barnaheill hafa frá stofnun lagt áherslu á starf innanlands og eru helstu áherslur á að standa vörð um réttindi barna, baráttu gegn ofbeldi á börnum, heilbrigðismál og að rödd barna heyrist betur í íslensku samfélagi. Erlendis styðja samtökin menntun barna og mannúðarstarf vegna hamfara.

Þátttaka Icepharma í Heillakeðjunni er hlekkur í samfélagslegri ábyrgð fyrirtækisins. Starfsfólk Icepharma vill einnig leggja sitt beint af mörkum með áheitum á áheitavefnum heillakedjan.is.

Ellefu fyrirtæki hafa ákveðið að taka þátt í Heillakeðju barnanna í ár. Þau eru;  Blómaval, Ölgerðin, Lýsi, VÍS, N1, Háskólabíó og Smárabíó, Síminn, Aðföng, Icepharma, Eymundsson og Epli.is. Með þátttöku í Heillakeðjunni hafa öll þessi fyrirtæki skuldbundið sig til að leggja verkefnum samtakanna lið. Hvert þeirra mun fara ólíkar leiðir í sínum mánuði en hægt verður að fylgjast með því sem í boði verður á heimasíðu fyrirtækjanna og á facebook-síðu Heillakeðjunnar.

Heillakedjan.is
Einstaklingar geta stutt verkefni samtakanna með því að fara inn á áheitavefinn heillakedjan.is. Þar er hægt að velja málefni og styrkja með greiðslukorti, millifærslu eða sms.

Börn þurfa á þínum stuðningi að halda – Taktu þátt í Heillakeðju barnanna 2012

Þeir sem vil