Börn eru fórnalömb átakanna

Barnaheill kalla eftir tafarlausu vopnahléi í Palestínu og Ísrael og að skref verði tekin til að vernda líf barna. Börn eru fórnalömb átakanna og eru í mikill hættu á að slasast eða láta lífið. Fjöldi þeirra barna sem hafa látist í árásunum síðastliðnar þrjár vikur er meiri en fjöldi þeirra barna sem hafa látist árlega í vopnuðum átökum á heimsvísu síðan árið 2019. Frá 7. október hafa að minnsta kosti 3.324 börn látið lífið í átökunum, þar af 3.195 börn á Gaza, 33 á Vesturbakkanum og 29 í Ísrael. Börn eru um 40% af öllum þeim sem hafa látið lífið í átökunum og enn eru um þúsund barna saknað. Því má ætla að tölurnar séu mun hærri í raun. Þá er mikill fjöldi barna slasaður og hættan á því að börn láti lífið af völdum áverka hefur aldrei verið meiri. Fjölmörg sjúkrahús eru ekki lengur starfhæf vegna rafmagnsleysis og umsáturs af hálfu ríkisstjórnar Ísraels sem hindrar innflutning á nauðsynlegum sjúkragögnum.

Barnaheill lýsa yfir miklum áhyggjum af auknu mannfalli vegna áframhaldandi aðgerða ísraelskra hersveita og kalla því eftir tafarlausu vopnahléi. Mikil vöntun er á nauðsynjum á svæðinu og hafa samtökin komið einum vörubíl með 45.000 vatnsflöskum inn á Gaza og er von á annarri sendingu á næstu dögum. Hvert tækifæri til að veita aðstoð á svæðinu er mikilvægt en þessar sendingar mæta á engan hátt þeirri miklu þörf sem er á svæðinu.

Vatn, matur, eldsneyti og sjúkragögn eru af mjög skornum skammti og skortur á eldsneyti gerir dreifingu á nauðsynjum erfitt fyrir. Stór hluti íbúa Gaza treystir á mannúðaraðstoð en lokað hefur verið fyrir þær helstu leiðir sem voru notaðar til að veita aðstoð. Því hefur ákallið um hjálp aukist enn frekar.