Börn á flótta - Hvað gerum við?

Myndir af líkum barna og fullorðinna sem drukkna á flótta yfir Miðjarðarhafið hafa birst reglulega í fjölmiðlum upp á síðkastið. Við sjáum að aðstæður þeirra flóttamanna sem komast til Evrópu eru skelfilegar. Skortur er á vatni, húsaskjóli og mat – og við slíkar aðstæður eru börn viðkvæmust.

Lesbos boy - Anna Pantella StCMyndir af líkum barna og fullorðinna sem drukkna á flótta yfir Miðjarðarhafið hafa birst reglulega í fjölmiðlum upp á síðkastið. Við sjáum að aðstæður þeirra flóttamanna sem komast til Evrópu eru skelfilegar. Skortur er á vatni, húsaskjóli og mat – og við slíkar aðstæður eru börn viðkvæmust.

Barnaheill – Save the Children á Íslandi hafa miklar áhyggjur af þeim fjölda flóttabarna sem hafa flúið til Evrópu á síðustu mánuðum í von um betra líf, ekki síst þeim sem eru án fjölskyldna sinna. Yfir tvær milljónir sýrlenskra barna hafa flúið heimaland sitt og eru ýmist í flóttamannabúðum eða á ferðlagi frá Sýrlandi. Um 2.000 fylgdarlaus flóttabörn hafa komið til Ítalíu og hátt í 150.000 sýrlensk börn hafa fæðst utan landsins frá því að átökin hófust fyrir fjórum og hálfu ári síðan.

Innan landamæra Sýrlands
Milljónir barna sem enn búa innan landamæra Sýrlands eiga á hættu að verða fyrir sprengjuárásum, ofbeldi, að missa foreldra sína eða tapa eigin lífi - eins og 10.000 börn hafa þegar gert. Örvinglaðir foreldrar hafa engan annan kost en að flýja heimaland sitt þar sem hungur, rjúkandi rústir og brostnir innviðir minna á að dapurleg framtíð blasir við þeim sem eftir sitja. Um tvær milljónir barna hafa flúið land en innan Sýrlands eru 3,5 milljónir barna á flótta.

Um þrjár milljónir sýrlenskra barna njóta ekki réttar síns til menntunar og það hefur áhrif á framtíðarmöguleika þeirra.
Barnaheill – Save the Children hafa dreift mat, drykkjarvatni, lyfjum og skjóli til barna og fjölskyldna þeirra. Samstarfsaðilar okkar hætta lífi sínu til að koma lífsnauðsynlegri hjálp til torfarinna svæða í Sýrlandi. Sem frjáls félagasamtök njótum við góðs af hlutleysi í stjórnmálum og það eflir mannúðarstarf okkar á þessu svæði.

Í flóttamannabúðum
Barnaheill – Save the Children vinna í Jórdaníu, Líbanon, Írak, Egyptalandi og Tyrklandi að því að dreifa matarmiðum, matarpökkum og brauði til að hjálpa börnum að fá nægilega næringu. Til að vernda flóttabörn frá kuldanum er teppum dreift til fjölskyldna. Gefin hafa verið segl til að skýla þeim sem búa í tjöldum eða skemmdum byggingum og útbúin eru örugg svæði þar sem börn geta leikið og lært.

Á flótta
Í skjóli nætur koma rúmlega 1.000 fl